fbpx
Laugardagur 24.maí 2025
Kynning

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 6. júní 2024 14:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugardaginn næstkomandi mun Hekla frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á sumarhátíð Heklu.

Hekla blæs til sumarhátíðar laugardaginn 8.júní frá kl.12 til 16 á Laugavegi 174. Frumsýning á annarri kynslóð Škoda Kodiaq sem er nú enn rúmbetri en áður og kemur að auki í tengiltvinnútgáfu. Veltibíllinn verður á svæðinu ásamt DJ Dóru Júlíu sem heldur uppi stuðinu.

Grillaðar pylsur, Prince Polo og fjöldi frábærra tilboða.

Til sýnis verða bílar frá Škoda, bæði rafmagns og dísel en hin sívinsæla og endingargóða Octavia er nú aftur fáanleg með fjórhjóladrifi og er nú á frábærum kjörum.

Sýningarsalir Audi og Volkswagen verða einnig fullir af spennandi bílum og valin eintök á einstökum tilboðum.

Škoda Kodiaq

Škoda Kodiaq kom fyrst á markað árið 2017 og hefur notið gífurlegra vinsælda á Íslandi sem og á heimsvísu. Síðan fyrsti Kodiaq bíllinn kom á götur Íslands í mars 2017 hafa fleiri en 930 Kodiaq bifreiðar bæst í hópinn og hefur Kodiaq fest sig í sessi sem ein vinsælasta tegund Škoda hér á landi.

Nú er komið að næstu kynslóð, sem verður fáanleg í tengiltvinnútgáfu í fyrsta sinn. Sú útgáfa mun vera með drægni allt að 118 km á rafmagni eingöngu, samkvæmt WLTP staðlinum. Einnig verður bíllinn fáanlegur með dísel vél sem er 190 hestöfl, sem er öflugri vél en forverinn var með.

Staðalbúnaður hefur einnig breyst töluvert, má þar helst nefna leðursæti, minnisstillingar fyrir bílstjórasæti, sjónlínuskjá auk ýmiss öryggisbúnaðar sem nú er staðalbúnaður. Að auki verður hann áfram fáanlegur 7 sæta.

Nýji Kodiaqinn lengist um 6cm og skottplássið sem þótti ansi gott í forveranum eykst um 75 lítra og er nú 910 lítrar. Einnig er algjörlega nýtt innrarými í bílnum, með 13“ aðgerðaskjá, 10,25“ stafrænu mælaborði og nýjum aðgerðahnöppum sem auðvelda notendum helstu aðgerðir á sem sneggstan máta (e. Smart dials).

Nýr Skoda Kodiaq hefur fengið frábærar viðtökur og er nú þegar búið að selja tugi bíla í forsölu sem væntanlegir eru til landsins á næstu vikum.

Jón Kristófer Stefán Jónsson, vörumerkjastjóri Skoda á Íslandi:

„Ný kynslóð af Škoda Kodiaq er afar spennandi viðbót við vörulínu Škoda hér á Íslandi. Škoda Kodiaq hefur notið mikilla vinsælda hjá okkar viðskiptavinum undanfarin ár og ætti það ekki að breytast með tilkomu annarar kynslóðar. Betrumbætt dísel útgáfa sem og tengiltvinnútgáfa með meira en 100 km drægni er hvorutveggja afar spennandi kostir. Škoda hefur tekist að gera frábæran bíl enn betri og hlökkum við til að viðskiptavinir okkar njóti góðs af því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea