Ég hef verið að taka ICEHERBS Hvannarrót í um það bil hálft ár. Það er komið ár síðan ég fór í keisara og átti seinna barnið mitt en eftir hann þá missti ég þvagþörfina þannig að ég fann aldrei fyrir því þegar ég þurfti að pissa,“ útskýrir Birna Dís.

„Þetta gerðist ekki eftir að ég átti fyrsta barnið mitt með keisara. En eftir seinni fæðinguna kom upp smá vesen með þvaglegginn eftir keisarann og í kjölfarið byrjaði þetta vandamál. Það var ekkert mál að pissa í sjálfu sér, en af því ég fann ekki fyrir því þá þurfti ég alltaf að muna eftir því að fara á klósettið á ákveðnum tímum. Stundum liðu kannski átta tímar þegar ég áttaði mig á því að ég var ekkert búin að pissa þann daginn sem hefði geta leitt til enn stærri vandamála.“

Eins og gefur að skilja fannst Birnu Dís þetta vandamál mjög óþægilegt og vildi leita lausna.

„Ég var orðin frekar örvæntingarfull yfir þessu og fór að skoða hvort ég gæti tekið einhver vítamín eða bætiefni sem gætu hjálpað. Ég ákvað að lesa utan á vítamín frá ICEHERBS og sá að hvannarrót ætti að hafa áhrif á þvagblöðruna svo ég ákvað að prófa.“

Trúði ekki hvað hún lagaðist fljótt

Birna Dís segir að eftir að hún byrjaði að taka inn ICEHERBS Hvannarrót hafi hún mjög fljótt fundið þvagþörfina koma aftur.

„Mig minnir að ég hafi fundið mun eftir svona viku. Ég gefst yfirleitt mjög fljótt upp á að taka inn bætiefni, en af því að ég fann mun svona snemma þá hélt ég áfram að taka þau inn. Ég trúði því varla að hvannarrótin hefði þessi áhrif þar sem mér fannst þetta gerast svo hratt. Ég ákvað að hætta að taka hana inn eftir eitt glas, en þá bara hvarf þvagþörfin aftur. Ég fór þess vegna að taka hana inn aftur og hef haldið mig við það síðan.“

Birna Dís þekkti aðeins til bætiefnanna frá ICEHERBS og hafði meðal annars verið að taka inn Astaxanthin og fleiri bætiefni frá því merki.

„Ég hef verið hrifin af vörunum þeirra og þess vegna valdi ég hvannarrótina frá þeim. Ég hef því miður ekki alltaf verið nógu dugleg að taka inn bætiefni, en af því að ég finn hvað ICEHERBS Hvannarrótin virkar vel þá hef ég passað upp á að taka hana daglega,“ segir hún og bætir við að hún myndi pottþétt mæla með ICEHERBS Hvannarrótinni fyrir konur sem upplifa sama vandamál.

Hvannarrót frá ICEHERBS

ICEHERBS Hvannarrót er úr íslenskri ætihvönn, sem heitir á latínu Angelica archangelica. Ætihvönn hefur sterkar rætur sem búa yfir miklum krafti og rótin á plöntunni virðist vera virkari og hafa mun meiri örvandi áhrif en aðrir hlutar plöntunnar. Hvannarrótin frá ICEHERBS er þurrkuð og möluð hvannarrót í hylkjum úr jurtabeðmi, sem gerir vöruna 100% náttúrulega.

Ætihvönn er ein þekktasta nytja- og lækningajurtin sem notuð var á Íslandi og víðar í Norðurálfu til forna, en hún vex aðallega á norðlægum slóðum eða hátt til fjalla í Evrópu. Allir hlutar plöntunnar hafa verið nýttir í gegnum tíðina en rótin var einna mest notuð til lækninga þar sem styrkleikar hennar hafa alltaf verið vel þekktir.

Jurtin er þekkt fyrir að vinna gegn einkennum ofvirkrar þvagblöðru og getur viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru og þvagrás. Sýnt hefur verið fram á að notkun hvannar geti fækkað salernisferðum og þar með haft jákvæð áhrif á svefn og um leið bætt daglegt líf. Áhrif hvannarrótar eru margvísleg og fyrir utan jákvæð áhrif hennar á þvagblöðru hefur hún lengi verið notuð við hvers kyns meltingarvandamálum, til að örva meltingu og draga úr uppþembu og lofti í maga. Dagleg inntaka hefur mikil jákvæð áhrif á líðan fólks.

Á seinni árum hafa svo verið gerðar miklar vísindalegar rannsóknir á virkni og efnainnihaldi ætihvannar sem hafa leitt í ljós að sú virkni sem kennd hefur verið við hvönnina í þúsundir ára er sannanleg og að ætihvönnin sé einkar virk og öflug jurt.

Hvannarrótin frá ICEHERBS fæst í öllum apótekum og heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó og Fjarðarkaupum. Sjá nánar á iceherbs.is.