MOISTURE og VISION vörulínurnar hafa verið fáanlegar hér á markaði frá árinu 2020 en nú í upphafi árs kom DERMAL vörulínan á markað hérlendis.

Vörulínan er unnin úr náttúrulegum berjaolíum sem vísindalega sannað er að gefi raka og er hægt að nota fyrir alla fjölskylduna. Allar vörurnar byggja á einstakri samsetningu innihaldsefna til að tryggja meiri raka húðar innan frá sem utan.

Þegar þurrkur er ekki vandamál geturðu lifað virku lífi sem þú elskar!

  • Náttúruleg nálgun og klínískt sannaður árangur
  • Náttúruleg virk innihaldsefni með græðandi hafþyrnisolíu (SBA24)
  • Vísindalega sannað öryggi og verkun
  • Sýnilegur árangur eftir 2-5 vikur
  • Rannsóknir og þróun er unnin í samvinnu við finnska lækna
  • Framleitt í Finnlandi
  • Öll vörulína Membrasin er vegan

Hafþyrnisolía er unnin úr aldinkjöti og fræjum hafþyrnis (e. sea buckthorn) en hafþyrnir vex á norðurhveli jarðar við hafið og skartar fagurappelsínugulum berjum. Olían er rík af ómega-7 fitusýrum, en miklar rannsóknir hafa verið gerðar undanfarin ár á ómega-‌7 með tilliti til allrar slímhúðar sem og fyrir húðina. Grunnurinn í Membrasin-vörunum er einmitt hafþyrnisolían. Að auki er öðrum virkum efnum bætt í hverja vöru fyrir sig til þess að auka virkni þeirra enn frekar.

MEMBRASIN® MOISTURE

Vörulínan er hönnuð sérstaklega til að viðhalda náttúrulegum raka í slímhúð kvenna til að koma í veg fyrir og draga úr þurrki. Vörurnar eru einstakar og byggja á vísindalegum rannsóknum, eru unnar úr náttúrulegum innihaldsefnum og eru hormónalaus meðferð til að vinna gegn þurrki í slímhúð. Tveggja þrepa lausn er fyrir þurrk í slímhúð kvenna sem samanstendur af bætiefni og leggangakremi.

MEMBRASIN® MOISTURE bætiefni

Bætiefnið inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® sem er rík af ómega-7. SBA24® er mest rannsakaða hafþyrnisolía í heiminum og hefur virkni og öryggi verið staðfest í klínískum rannsóknum.

SBA24® hafþyrnisolía endurnýjar og nærir mikilvæga slímhúð, til dæmis á kynfærasvæðinu. Bætiefnið stuðlar einnig að eðlilegum raka húðarinnar. Venjulega koma jákvæð áhrif fram eftir 2-5 vikur. Bætiefnið er í formi grænmetishylkja og er 100% vegan. Bætiefnið inniheldur ómega-3, -6, -7 og -9 fitusýrur, A- og E-vítamín.

Fæðubótarefnið inniheldur náttúrulegt beta-karótín, uppsprettu A-vítamíns, sem stuðlar að því að viðhalda eðlilegri starfsemi slímhúðar og húðar. E-vítamín stuðlar að verndun fruma gegn oxunarálagi.

MEMBRASIN® MOISTURE leggangakrem

Leggangakremið er hormónalaust með sannaða virkni (MD – lækningatæki) og inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® og er hormóna- og ilmefnalaust. Kremið nærir slímhúð legganga, húð og slímhúð ytri kynfæra og dregur úr þurrki. Kremið inniheldur annars vegar hýalúrónsýru sem eykur raka og mýkir og hins vegar mjólkursýru sem hefur góð áhrif á bakteríuflóru legganga og stuðlar að réttu sýrustigi.

MEMBRASIN® VISION

Vörulínan er þróuð til að vinna gegn augnþurrki og viðurkennd af augnlæknafélagi Finnlands. Augnþurrkur er algengt vandamál sem hrjáir breiðan hóp fólks á öllum aldri. Augnþurrkur getur verið afar óþægilegur og valdið kláða og þreytu. Ástæður fyrir þurrki í augum geta verið vegna mikillar skjánotkunar, breyttra lífsstílsvenja eða fylgifiskur inntöku lyfja eða sjúkdóma svo eitthvað sé nefnt.

Membrasin® Vision er einstök tveggja þrepa lausn sem dregur úr einkennum augnþurrks og samanstendur af bætiefni og augnúða.

MEMBRASIN® VISION bætiefni

Bætiefnið veitir raka og verndar augun á náttúrulegan hátt. Stuðlar að viðhaldi eðlilegrar sjónar og raka í slímhúð augna. Það inniheldur einstaka blöndu af SBA24® hafþyrnisolíu sem er rík af ómega-7, lúteini og zeaxantín til að vernda slímhúð augans, sjónhimnu og tárafilmu, styrkir augnbotnana og verndar gegn bláum geislum frá tölvu og skjáum farsíma. Bætiefnið inniheldur einnig ómega-3, -6 og -9 fitusýrur ásamt A- og E-vítamíni. Bæði lútein og zeaxantín eru nauðsynleg fyrir heilbrigða augnheilsu.

Membrasin Vision bætiefnið inniheldur einnig náttúrulega uppsprettu A-vítamíns, úr náttúrulegu beta-karótíni, sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar sjónar, og E-vítamín, sem verndar frumurnar gegn oxunarskemmdum.

MEMBRASIN® VISION VITALITY augnúði

Augnúði sem dregur úr augnþurrki og gefur húðinni í kringum augun raka. Úðinn er með sannaða virkni og flokkast sem lækningatæki. Úðinn inniheldur annars vegar hafþyrnisolíu SBA24® og hýalúrónatsýru. Hafþyrnisolían styrkir fitulag tárafilmunnar og ver augun gegn þurrki. Hýalúrónatsýran styður við vatnsbindigetu táravökvans, smyr augun og kemur í veg fyrir frumuskemmdir.

Vandamál tengd þurrki í slímhúð augna hafa færst í aukana síðustu ár vegna breyttra lífshátta, en við erum mörg hver farin að eyða miklum tíma með snjalltækin fyrir framan okkur. Börn allt niður í þriggja ára eru farin að þurfa lausnir við augnþurrki enda verja mörg þeirra óhóflega miklum tíma með snjalltækjum. Úðinn er sérstaklega hannaður fyrir viðkvæm augu og er óhætt að nota hann á börn niður í allt að þriggja ára aldur.

Vision Vitality úðinn er einfaldur í notkun og má nota með augnlinsum og eftir að augnfarði hefur verið settur á. Hentar vel fyrir viðkvæm augu. Augnlæknar mæla með vörunni.

MEMBRASIN® DERMAL

Membrasin® Dermal vörulínan hentar fyrir alla fjölskylduna. Vörurnar hafa virk og fyrirbyggjandi áhrif á viðkvæma og þurra húð og jafnvel á exem. Láttu náttúruna sjá um þig og þína nánustu frá toppi til táar. Membrasin Dermal er þriggja þrepa lausn fyrir mjög þurra húð og þá sem eiga við húðvandamál að stríða.

MEMBRASIN® DERMAL bætiefni

Membrasin® bætiefnið til að bæta vökvastig húðarinnar stuðlar að viðhaldi varnarlags húðarinnar og kemur í veg fyrir og róar þurra húð og kláða. Það er náttúruleg næringaruppbót og stuðningur við heilbrigða húð.

Bætiefnið inniheldur einstaka blöndu BC634® sólberjafræjaolíu og SBA24® hafþyrnisolíu. Báðar eru þær ríkar af lífsnauðsynlegum fitusýrum til að viðhalda heilbrigði húðarinnar. Sýnt hefur verið fram á öryggi og virkni BC634® sólberjafræjaolíu og SBA24® hafþyrnisolíu með vísindalegum rannsóknum. Bætiefnið inniheldur einnig lífsnauðsynlegar ómega-3, -6, -7 og -9 fitusýrur og A- og E-vítamín stuðla að heilbrigði húðarinnar. Bætiefnið er í formi gelhylkja sem unnin eru úr jurtum og henta grænkerum (vegan).

MEMBRASIN® DERMAL græðikrem fyrir þurra húð

Membrasin®-græðikrem slær á ofnæmisexem, kláða og roða. Það mýkir einnig þurra húð og veitir raka. Kremið verndar húðina, bætir varnareiginleika hennar og kemur í veg fyrir þurrk og bólgu.

Kremið inniheldur Sólberjafræsolíu BC634® sem er afar góð uppspretta Omega-3, -6 og -9 fitusýra og eru nauðsynlegar fyrir heilbrigða húð. Samsetning sólberjafræsolíu og annarra virkra náttúrulegra innihaldsefna ver viðkvæma, þurra húð og exemhúð á áhrifaríkan hátt. Virkni hefur verið staðfest í klínískum rannsóknum.

MEMBRASIN® DERMAL húðolía með lifandi gerlum

Membrasin® húðolía með góðgerlum er einstök og nýstárleg húðolía með virkum og lifandi góðgerlum. Hún hentar vel á mjög þurra húð til að mýkja, veita raka og auka frískleika. Olían inniheldur lifandi lactobacillus rhamnosus-gerla, hafþyrnisolíu og sólberjafræolíu.

Hafþyrnisolía og sólberjafræolía eru ríkar af lífsnauðsynlegum ómega-3, -6 og -9 fitusýrum sem stuðla að heilbrigðri húð. Blanda lifandi, virkra góðgerla og náttúrulegra berjaolía veitir öflugan stuðning fyrir viðkvæma, þurra og exemhúð.

Hentar vel á þurra húð til að mýkja, veita raka og auka frískleika. Endurbyggir og eflir heilbrigða gerlaflóru á viðkvæmri húð. Skilur húðina eftir silkimjúka en ekki olíukennda. Olían styrkir viðkvæma, þurra og exemhúð með virkum hætti og hentar fyrir alla fjölskylduna.

Ekki ætti að nota fæðubótarefni í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífernis. Geymið við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn ná ekki til. Náttúrulegur breytileiki á lit og gagnsæi olíu er eðlilegur.

MEMBRASIN fæst í flestum apótekum, Fræinu Fjarðarkaupum, Heilsuhúsinu Kringlunni, Hagkaupum og Dreifingaraðili Avita ehf.

Vörulínan frá Moisture.
Vörurnar frá Vision eru þróaðar til að vinna gegn augnþurrki.