fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Ný verslun Losta á Laugaveginum: Hrekkjavökugleði á laugardaginn – afslættir og kaupaukar í boði

Kynning
Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. október 2022 15:11

Losti opnaði nýja og glæsilega verslun á Laugaveginum í byrjun október og býður í hrekkjavökupartí á laugardaginn frá 18:00-20:00. DV/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann fyrsta október opnaði ný og glæsileg verslun Losta á Laugavegi 51. „Konseptið er það sama og í versluninni í Borgartúninu, en hér á Laugavegi ætlum við að bjóða gestum upp á lengri og betri opnunartíma,“ segir Saga Lluvia, eigandi Losta.

Losti er svo miklu meira en verslun með leiktæki ástarlífsins. Ævintýrið hófst sem vefverslun sem þróaðist út í að gegna einnig hlutverki veftímarits. Þegar verslun Losta opnaði í Borgartúninu vissi Saga að hún vildi hafa þar notalegt andrúmsloft, þar sem gestir gætu komið, gluggað í bækur um kynlíf, fræðst um allt tengt kynlífi, skoðað úrvalið af leiktækjum ástarlífsins og haft það notalegt.

Nú er unnið að því að gera húsnæðið á Laugaveginum klárt til að taka á móti hópum í kynningar sem og bjóða upp á skemmtilega viðburði í tengslum við starfsemi Losta.

Viðburðir og hópakynningar í Losta

Losti í Borgartúninu hefur síðustu ár verið ein helsta kynlífsmiðstöð landsins með fjölda viðburða, námskeiða og fræðsluerinda þar sem gestir fá að vita allt sem þeir vildu vita um kynlíf og meira til.

Losti býður upp á sívinsælar heimakynningar. „Við mætum þá í heimahús þar sem eru í gangi stórafmæli, gæsa- eða steggjapartý eða annað og kynnum þau leiktæki sem eru vinsælust hverju sinni og spennandi. Heimakynningarnar slá alltaf í gegn og við bjóðum að sjálfsögðu upp á að koma í heimahús með kynningar og skemmtanir.

Við höfum við líka tekið á móti hópum í Borgartúninu í samskonar kynningar. Þar er aðeins öðruvísi fílingur því hjá okkur er fólk umkringt leiktækjum, komið inn í aðra veröld þar sem kynlífið og lystisemdir þess skiptir allra mestu máli. Þá er líka algengt að hóparnir geri sér kvöld úr kynningunni og fari út að borða saman áður eða eftir. Það er alltaf rífandi stemning í hópunum á þessum kynningum og þau sem kaupa eitthvað eru spennt að fara heim og njóta kaupanna, í einrúmi eða með makanum.

Losi í Borgartúninu hefur fest sig í sessi sem ein helsta kynlífsmiðstöð landsins.

Í verslun Losta á Laugavegi vinnum við núna hægt og rólega að því að geta tekið á móti hópum líka, hvort sem er í kynningar, námskeið eða annað. Þetta verður sama hugmyndafræði og svo bætir lífið á Laugaveginum ákveðnu elementi við, enda erum við mun nær skemmtanamiðju bæjarins en í Borgartúninu,“ segir Saga.

Saga Lluvia Sigurðardóttir er eigandi Losta.

Halloween gleði framundan

Það var margt um manninn á fyrstu opnunarhelgi Losta á Laugaveginum en 20% afsláttur var þá í versluninni og kynntar voru nýjar og spennandi vörur. „Núna um helgina, laugardaginn 29. október, verður hrekkjavökupartý í búðinni. Gamanið byrjar klukkan 18:00 og lýkur klukkan 20:00. Það verða sérstakir afslættir í boði sem gilda einungis frá kl. 18-20 þennan dag og svo erum við með veglega kaupauka fyrir fyrstu 50 viðskiptavinina. Það er því um að gera að mæta snemma.

Úrvalið af spennandi leiktækjum ástarlífsins er einstaklega fjölbreytt.

Fylgstu með

Það er svo sem sjaldan sem það er ekki eitthvað húllumhæ í Losta en áhugasömum er bent á að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum. Við erum virk á Instagram undir nafninu @Losti.is og auglýsum þar nýjar vörur, afslætti, skemmtilega viðburði og fleira sem er í gangi í verslunum okkar. Það getur verið snúið að auglýsa kynlífstæki á hefðbundinn hátt þar sem það eru oft strangar reglur um svona “explicit content” á samfélagsmiðlum, en við gerum okkar besta við að hafa efnið skemmtilegt, fræðandi og hæfilega æsandi.“

Rianne S býður upp á fjölbreytt úrval leiktækja sem æsa konuna í þínu lífi.

Hannað fyrir unað konunnar

Nýlega tók Losti ný og spennandi kynlífsleiktæki til sölu frá Rianne S. „Vörumerkið Rianne S sérhæfir sig í að hanna og framleiða frumlega og vandaða vöru fyrir nútímakonuna. Rianne S vörur eru hannaðar til að umvefja og örva öll skilningarvit kvenna. Vörurnar bjóða öllum konum að kanna kynferðisleg mörk sín og leysa úr læðingi gyðjuna sem býr hið innra með hverri konu. Rianne S hefur tekist að þróa og fullkomna hágæða vandað og seiðandi lífstílsvörumerki sem fagnar konum og kynhneigð þeirra. Þessar vörur eru frábærar sem gjöf líka,“ segir Saga.

Rianne S leiktækin eru sérstaklega hönnuð með þarfir og unað konunnar í huga. Svo skemmir ekki fyrir hvað vörurnar eru fallegar.

Krydduð aðventa

Nú fer að styttast í jólin með öllum sínum jólagjafainnkaupum, ákvörðunum um hátíðarmatinn, skipulagi, litlu jólum, jólaföndri og fleira. „Það má ekki gleyma því í öllum æsingnum að hlúa aðeins að sjálfum sér og ástinni. Við erum búin að fá jóladagatölin í hús og ég get staðfest að þetta er ein skemmtilegasta leiðin til að krydda upp á aðventuna hjá annasömum pörum. Það er ekki nóg að fara bara saman í búðir að kaupa jólagjafir, það þarf líka að hlúa að samverunni. Það er samveran sem gerir aðdraganda jólanna að töfrandi tíma,“ segir Saga að lokum.

Komdu í heimsókn í Losta í Borgartúni, nýju verslunina að Laugavegi 51 eða í vefverslun Losta losti.is.

Kynlífstækjadagatölin eru sívinsæl og rjúka út fyrir aðventuna, enda eru þau skemmtileg leið til að kynda undir ástinni í hamaganginum í desember.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum