fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Kynning

Gerðu frábær kaup á raftækjum á LG dögum í Raflandi: Afslátturinn gildir fram á laugardag

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 9. mars 2020 12:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru LG dagar í Raflandi!

Nú er 20-40% afsláttur af öllum vörum frá LG í Raflandi. Afslátturinn gildir út laugardaginn 14. mars.

Í Raflandi er landsins mesta úrval af LG vörum, en LG er einn virtasti framleiðandi raftækja í heiminum í dag. LG hefur lengst af verið þekkt fyrir farsíma og sjónvörp en framleiða einnig hágæða heimilistæki, heimabíó, hátalara og fleira.

 

Brautryðjandi!

LG er brautryðjandi í OLED sjónvarpstækni sem bjóða upp á bestu mögulegu myndgæði í sjónvarpi í dag. Með yfir 1 milljarð litatóna og fullkomnum svörtum lit. Enn dýpri svartur skilar sér svo í margslungnari og betri litum. Erfitt hefur reynst að sýna fram á að önnur sjónvarpstækni standist samanburð í myndgæðum. LG leggur auk þess áherslu á að sjónvörpin séu ekki lýti á rýminu heldur er mikið lagt upp úr glæsilegri hönnun. Nýjustu sjónvörpin frá LG eru stílhrein, örþunn og laus við þykkan ramma utan um skjáinn. LG OLED sjónvörpin fara sívaxandi í vinsældum hér á landi og það er ekki að ástæðulausu að þau eru ein mest seldu OLED tækin á markaðnum.

NanoCell sjónvörpin frá LG hafa einnig notið talsverðra vinsælda en allt að 40% afsláttur er af þeim á LG Dögum. Nano Cell skjátæknin gefur skýrari liti og betri mynd frá öllum sjónarhornum og eru því tilvalin fjölskyldusjónvörp eða annarsstaðar þar sem margir safnast reglulega saman við sjónvarpið.

Allt af 30% afsláttur af kæliskápum

LG framleiðir einnig vandaða og flotta kæliskápa sem koma í mismunandi litum og áferðum. Þá er hvort heldur hægt að fá þá einfalda eða tvöfalda, með klakavélum og án. LG eru þekktir fyrir tækninýsköpun og hafa því kæliskáparnir frá þeim margir spennandi tæknilega eiginleika sem einfalda lífið og hámarka notagildi kæliskápsins. Sem dæmi má nefna Door-in-Door tæknina þar sem aukahurð er að finna í skápnum. Multi Flow kælivifta jafnar kælinguna í skápnum og Moist Balance Crisper grænmetisskúffur halda réttu rakastigi á grænmeti til þess að lengja líftíma þeirra og sporna þannig gegn matarsóun. Nú er allt að 30% afsláttur af LG kæliskápum á LG dögum.

Þá býður LG einnig upp á fjölbreytt úrval þvottavéla og þurrkara á sanngjörnu verði. Sambyggðu tækin þeirra hafa notið mikilla vinsælda en þau spara bæði orku og pláss. Tækin eru þekkt fyrir að vera hljóðlát, falleg og vönduð með orkusparnað að leiðarljósi. Mörg hver þeirra má einnig tengja við Smart ThinQ appið þar sem má bæta við aukaþvottakerfum og jafnvel tímastilla þvottatíma.

LG býður auk þessara tækja upp á heimabíó, þráðlausa hátalara, allar gerðir sjónvarpa, hljómtæki, Soundbar og farsíma svo fátt eitt sé nefnt og allar vörur eru á 20-40% afslætti út næsta laugardag.

Verslun Raflands er staðsett að Síðumúla 2-4 og er opin virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 11-16. Sjónvarps- og raftækjadeild Raflands er í Síðumúla 2 og heimilistækjadeildin er staðsett í Síðumúla 4 við hliðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
26.10.2025

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld
Kynning
25.10.2025

BRASA opnar í hjarta Kópavogs – Jólaveisla sælkerans hefst í nóvember

BRASA opnar í hjarta Kópavogs – Jólaveisla sælkerans hefst í nóvember
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
06.05.2025

Boozt kynnir einstaka húsgagnalínu

Boozt kynnir einstaka húsgagnalínu