fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Kynning

Þjótandi – Sérhæfing og ný tækni í jarðvinnu og vegagerð

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. maí 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Þjótandi á Hellu er eitt af stærri fyrirtækjum á Suðurlandi í jarðvinnu. Í dag er fyrirtækið með um 20 starfsmenn í vinnu,  yfir 50 vinnuvélar og 18 vörubíla. Fyrirtækið var ekki stórt í upphafi, en árið 1991 keypti Ólafur Einarsson, sem er fæddur og uppalinn á Hellu, sér gröfu eftir að hann varð atvinnulaus eftir gjaldþrot þáverandi vinnuveitanda síns.

„Við erum í allri jarðvinnu, vegagerð, og allri mannvirkjagerð sem tilheyrir jarðvinnu,“ segir Ólafur. „Við erum sérhæfðir í lagnavinnu, vinnum mikið fyrir veitustofnanir og sveitarfélög við að leggja lagnir, jarðstrengi, hitaveitu og vatnslagnir og ljósleiðarastrengi.

Við sinnum einnig vetrarþjónustu fyrir sveitarfélög og Vegagerðina með snjómokstur og hálkuvarnir.“

Ekkert verk er of stórt eða of lítið fyrir Þjótanda. „Við sinnum öllu frá smáverkum upp í stærri verkefni og erum með gröfur frá 2 tonnum upp í risagröfur sem eru 60 tonn.“

Verkefni fyrir sveitarfélög

Þjótandi vinnur mikið á útboðsmarkaðnum, þar sem fyrirtækið býður í verkefni hjá ýmsum aðilum. „Stærsta verkefnið í dag er verkefni fyrir Vegagerðina sem heitir Gjábakkavegur á Þingvöllum og strenglagnir fyrir Rarik og sveitarfélög. Einnig er verið að vinna við gatnagerð á Hellu.“

Nýlega tók fyrirtækið upp nýja tækni sem kallast klapparfræsari. „Það er sög sem sagar fyrir strengjum í klappir. Þetta er nýjung hér á landi í strenglögn, því þá þarf ekki að fleyga fyrir jarðstrengjum í klappirnar sem hefur verið mjög tímafrekt og kostnaðarsamt.“ Þjótandi er eina fyrirtækið hér á landi sem býr yfir þessari tækni. Fyrirtækið hefur yfir að ráða 4 jarðýtum sérútbúnum með víbraplógum til strenglanga.

„Við erum að bora undir vegi, getum borað allt að 70 sentimetra rör undir vegi fyrir lögnum,“ segir Ólafur. „Þjótandi er einnig með bílkrana og sá stærsti er 85 tonn.

Þjótandi ehf. er staðsett á Hellu, en tekur að sér vinnu um allt land.

Allar upplýsingar má fá í síma 893-9190 og á netfanginu tjotandi@simnet.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
10.04.2025

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!
Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ