fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Kynning

Hótel Glymur: Einstök perla í fallegu umhverfi Hvalfjarðar

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 30. maí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinsnar frá Reykjavík er Hótel Glymur í fallegu umhverfi með frábæru útsýni yfir Hvalfjörðinn. Þar er boðið upp á dekurpakka, sem inniheldur gistingu, kvöldverð og morgunmat, en veitingastaðurinn er einnig opinn öllum allan ársins hring.

„Við keyptum hótelið í september í fyrra,“ segir Hjalti Þór Sverrisson, einn eigenda Hótel Glyms í Hvalfirði, en þar hefur verið rekið hótel síðan árið 2000. „Við erum með 25 herbergi og sex glæsivillur, sem allar eru með heitum potti,“ segir Hjalti Þór.

Þorp með glæsivillum

Glæsivillurnar eru sex glæsileg heilsárshús, sérhönnuð í tveimur stærðum og innréttuð á afar vandaðan hátt með stórfenglegu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Húsin eru öll mjög vel búin, með ýmist einu eða tveimur svefnherbergjum. Gengið er inn í baðherbergin úr svefnherbergjum og þaðan út í heitu pottana sem eru á rúmgóðri suðurverönd með útihúsgögnum. Hægt er að kaupa alla þjónustu af hótelinu svo sem morgunverð, kvöldverð, barþjónustu og halda þar stærri veislu.

Dekurpakkar eru vinsælastir á veitingastaðnum

Veitingastaðurinn á Hótel Glymi býður upp á bæði hádegis- og kvöldmatseðill, sá á kvöldin er öllu veglegri, en hvort sem komið er í hádegi eða að kvöldi til má finna þar mat við allra hæfi.

Vinsælast er að taka þríréttað og er boðið upp á þrjá pakka: Rökkur og rómantík, Dekur og dýrð og Krydd og kossar. Pakkanum fylgir þriggja rétta kvöldverður, gisting í eina nótt og morgunverðarhlaðborð.

Umhverfi Hótel Glyms býður upp á frábærar gönguleiðir, meðal annars niður í Saurbæ, Brynjudal og fleiri staði, en nóg er af fallegu umhverfi og náttúru. „Það er vinsælt að kíkja á safnið hjá Gauja litla,“ segir Hjalti Þór, en þar er að sjálfsögðu átt við Hernámssetrið þar sem Guðjón Sigmundsson (Gaui litli) ræður ríkjum.

Vinsælt er hjá hjólreiðafólki að hjóla Hvalfjörðinn og stoppa í hádegismat á Hótel Glymi, starfsmannahópar hafa komið í vinnuferðir, ráðstefnur og stefnumótunarfundi, einnig hentar vel að halda þar veislur eins og fermingar, árshátíðir, afmæli, ættarmót og fleira, enda tekur salurinn um 70 manns í sæti.

Opið er allt árið um kring.

Hótel Glymur, síminn er 430-3100, netfangið er info@hotelglymur.is.

Heimasíða: hotelglymur.is og Hótel Glymur er einnig á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
Kynning
16.06.2023

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt
Kynning
04.05.2023

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS