fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Tónastöðin – Um kaup á hljóðfærum og fylgihlutum, fyrir byrjendur og lengra komna

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 4. ágúst 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gæði, ráðleggingar og gott verð

Tónastöðin, ein rótgrónasta hljóðfæraverslun landsins, fagnaði 30 ára afmæli í fyrra, en hjónin Andrés og Hrönn stofnuðu Tónastöðina árið 1987 á Akranesi. Frá árinu 1995 hefur hún verið í Skipholti. Á þessum árum hefur safnast upp gífurleg reynsla og þekking í versluninni, sem þjónustar jafnt byrjendur sem lengra komna.

„Gæði hafa ávallt verið aðalsmerki hjá okkur. Við erum með allt til alls fyrir hljóðfæraleikara og tónlistarmenn. Við leggjum mikla áherslu á að þjónusta börn og byrjendur vel og erum líka ráðgefandi fyrir foreldra,“ segir Andrés. „Gítarar og píanó eru sívinsæl, en upphaflega var verslunin stofnuð til að selja blásturshljóðfæri og þau hafa verið stór þáttur hjá okkur.

Við lögðum upp með að þjónusta tónlistarskólana og nemendur þeirra og þar skipta gæði auðvitað höfuðmáli.“

Allt í boði sem þarf til tónlistariðkunar

Tónastöðin er svokölluð „full line“ verslun og býður upp á trommur, gítara, píanó, fiðlur og flautur svo fátt eitt sé nefnt, auk allra fylgihluta og nótnabóka.

„Eitt er að selja hljóðfæri, annað að þjónusta þau eftir á,“ segir Andrés. „Mesta áherslan hefur alltaf verið á gæði þess sem við seljum. Kjörorð okkar er: „Það besta verður ávallt ódýrast“ því bestu kaupin eru í hlutum sem bæði endast vel og eldast vel. Auk þess eru okkar vörur á hagstæðu verði. Hljóðfæri eru almennt ódýr á Íslandi miðað við löndin í kringum okkur því við gerum okkur grein fyrir því að við erum í alþjóðlegri samkeppni. Það er líka nauðsynlegt að þreifa á hljóðfærum og prófa þau áður en maður kaupir þau.

Við erum með allar tegundir af hljóðfærum í miklu úrvali, trommur, píanó, gítara, rafmagnsgítara, upptökutæki, magnara – við höfum þetta allt. Gítareffektar eru hér í úrvali sem þekkist ekki annars staðar á landinu. Þetta vita íslenskir hljóðfæraleikarar og við fáum mikið hrós frá útlendingum sem undrast úrvalið. Þá erum við með óviðjafnanlegt úrval af upptökutækjum. Bæði RODE og ZOOM-tækin hafa til dæmis verið gríðarlega vinsæl: upptökutæki, hljóðnemar og vídeóupptökutæki.“

Mesta úrval nótnabóka á landinu

Tónastöðin hefur skapað sér sérstöðu á margan hátt. Til dæmis er þar mesta úrval af nótnabókum á landinu og Tónastöðin hefur alltaf verið stolt af nótnadeildinni. Mörg þúsund titlar og ættu flestir sem langar til að spila uppáhaldslögin sín að geta fundið nótur af þeim.

„Kennarar hafa komið frá meðal annars Noregi og Skotlandi til að kaupa nótnabækur og segjast hvergi komast í betri nótnaverslanir í sínum heimalöndum,“ segir Andrés. „Ferðamenn koma mikið til okkar, og heimsóknir þeirra og kaup hafa aukist, sérstaklega á dýrari  hljóðfærum.“

Nýjungar í hljóðfærum

Það skemmtilegasta sem við gerum er að kynna nýjungar í hljóðfærum og tækjum: „Við erum til dæmis með hljóðfæri sem heitir Merlin, sem mætti kalla nútíma langspil. Svo eru til mörg afbrigði af gítörum, ekki bara þessi hefðbundni gítar.“

Að sögn Andrésar kostar það furðulítið í dag að koma sér upp búnaði til að spila og taka upp tónlist: „Það er hægt að koma sér upp ótrúlega góðum búnaði fyrir lítinn pening í dag – sem er mikil breyting frá fyrri tíð. Okkar viðhorf er líka að menn eigi ekki að offjárfesta þegar þeir taka fyrstu skrefin, en fá samt nógu mikil gæði til að þeir verði ekki fyrir vonbrigðum. Við þurfum oft að ráðleggja fólki og hér er til staðar þekking og reynsla til þess. Allir sem hér starfa eru með yfirgripsmikla þekkingu og hafa annaðhvort kennt lengi eða starfað lengi í þessum bransa.“

Hljóðfæri og tónlistarsköpun þróast í takt við tæknina

Tæknin hefur hafið innreið sína í tónlistina og hljóðfæri og Tónastöðin býður upp á margar hentugar lausnir fyrir þá sem vilja skapa tónlist með tölvum.

„Það eiga allir tölvu í dag, við erum með upptökukort og tæki sem er hægt að tengja við tölvuna,“ segir Andrés. „Við erum með tæki fyrir þá sem spila ekki á píanó, þá eru til aðrar lausnir eins og Notepad.“

Tónastöðin er ekki með verkstæði, en sinnir smáviðgerðum, eins og skipta um strengi og þess háttar, en tekur hljóðfæri inn til viðgerðar og er í góðu samstarfi við viðgerðaraðila.

Gæðagjafir sem endast – gjafabréf í boði

Andrés bendir á að hljóðfæri og upptökubúnaður séu gjafir sem endast og séu því margfaldlega peninganna virði: „Góðir íþróttaskór kosta tugi þúsunda og endast árið en góður gítar getur enst alla ævi.“

Gjafabréf í Tónastöðinni eru ávallt vinsæl enda svo margt til þar sem gleður tónlistarmenn og tónlistaráhugafólk. Hægt er að fá gjafabréf með upphæð að eigin vali. En það er líka auðvelt að skipta vörum ef það heppilegasta hefur ekki verið keypt.

„Þetta er skemmtilegur bransi og viðskiptavinirnir líka, mér hefur aldrei leiðst í þessi 30 ár sem ég hef verið hér,“ segir Andrés, en viðskiptavinirnir eru á öllum aldri og mislangt komnir í tónlistinni. Af og til hefur Tónastöðin verið með viðburði, tónleika og kynningar og stendur til að halda því áfram. „Það er mjög gaman, við erum með svið hér í versluninni.“

Tónastöðin er til húsa í Skipholti 50d, Reykjavík, sími er 552-1185 og netfang: tonastodin@tonastodin.is. Facebook: tonastodin.

Opið er kl. 10–18 virka daga og kl. 10–15 á laugardögum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum