fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
FókusKynning

Lýsing & hönnun

Kynning

Er með lausnir fyrir alla

Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 26. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar kemur að hönnun rýmis þá skiptir miklu máli að velja rétta lýsingu, þar sem lýsing getur gert mjög mikið til að skapa rétta stemminguLýsing & Hönnun er lítið fjölskyldufyrirtæki sem kappkostar að veita persónulega og góða þjónustu varðandi allt sem viðkemur lýsingu, í stórum sem smáum verkefnum, fyrir allar tegundir bygginga. „Starfsmenn okkar eru sannkallaðir reynsluboltar í faginu en Heimir Jónasson rafmagnsiðnfræðingur og eigandi fyrirtækisins hefur mjög mikla reynslu í raflagna- og lýsingarhönnun. Guðmundur Helgi Pálsson er reyndur lýsingarhönnuður og Róbert Hjaltason er menntaður rafvirki og rafmagnsiðnfræðingur, en hann hefur góða reynslu í raflagnahönnun,“ segir Erla Heimisdóttir viðskiptafræðingur, en hún stofnaði Lýsingu & Hönnun árið 2007 ásamt eiginmanni sínum, Heimi Jónassyni rafmagnsiðnfræðingi.

Taurus Steakhouse. Amina og Kamal ljós í antique brass frá Mullan.
Taurus Steakhouse. Amina og Kamal ljós í antique brass frá Mullan.

Ýmiss konar verkefni

„Við höfum verið afar lánsöm að fá að taka þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum. Bæði höfum við unnið með húseigendum að endurbótum og nýbyggingum á einbýlishúsum, sem og arkitektum og innanhússarkitektum í sérlega fjölbreyttum og spennandi verkefnum bæði stórum og smáum. Hvort sem um er að ræða eina íbúð, einbýlishús, hótel, skrifstofuhúsnæði, íbúðablokkir, veitingastaði eða íþróttamannvirki, þá sjáum við um þetta allt enda kunnum við til verka,“ segir Erla.

Í heimahúsi á Íslandi. Ljós: Tage svart frá Pholc.
Í heimahúsi á Íslandi. Ljós: Tage svart frá Pholc.

Allt á einum stað

„Við vitum að það er í mörg horn að líta þegar verið er að byggja og þá hjálpar að geta fengið allt sem snýr að rafmagnshlutanum á einum stað. Hugmyndin að fyrirtækinu var því upphaflega sú að aðstoða húsbyggjendur við allt sem sneri að rafmagni í húsum, svo sem raflagnateikningar, lýsingarhönnun, rafbúnað og allt það val sem viðkomandi stendur frammi fyrir. Það er alveg greinilegt að mikil þörf hefur verið á markaðnum fyrir þjónustuna sem við bjóðum upp á, enda hefur verið mikið að gera hjá okkur undanfarið,“ segir Erla. En líkt og nafnið gefur til kynna þá er starfsemi Lýsingar & Hönnunar tvíþætt. Annars vegar er um að ræða verkfræðiþjónustu í raflagnateikningum og lýsingarhönnun. Hins vegar er Lýsing & Hönnun verslun þar sem aðaláherslan er á allar gerðir ljósa fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. „Í versluninni erum við með gríðarlegt úrval af fallegum ljósum og ljósakrónum sem prýða hvers kyns rými,“ segir Erla. Einnig býður fyrirtækið upp á sérfræðiráðgjöf í lýsingarhönnun fyrir einstaklinga og fyrirtæki, þar sem starfsmenn á vegum fyrirtækisins mæta á staðinn, taka út húsnæðið og ráðleggja varðandi raflagnir og uppsetningu á lýsingu.

HDL hita- og ljósastýrikerfi

HDL ljósa- og hitastýrikerfi.
HDL ljósa- og hitastýrikerfi.

„Mikill meirihluti af húsbyggjendum sem leita til okkar velur HDL hita- og ljósastýrikerfi, en þetta kerfi býður upp á endalausa möguleika sem uppfylla mjög mismunandi kröfur. Verðið kemur líka skemmtilega á óvart, en HDL kerfið er alls ekki mikið dýrara en að vera með hefðbundna ljósdeyfa og hitanema,“ segir Erla. Með HDL kerfinu er meðal annars hægt að stjórna ljósum og hita með spjaldtölvum. Þannig má breyta stemningu í rýminu á afar einfaldan og þægilegan hátt. Einnig er hægt að stýra hita og ljósum með einum rofa sem myndar heildstætt kerfi. Nýlega kom HDL svo fram með byltingarkennda nýjung sem auðveldar nú eigendum eldri húsa að vera með HDL kerfi, þrátt fyrir að raflögn hússins sé ekki sérstaklega aðlöguð að kerfinu. Um er að ræða þráðlausa rofa sem hægt er að setja nánast hvar sem er og því talsvert einfaldari í uppsetningu en hefðbundið HDL kerfi.

Brooklyn Tin veggfóður frá NLXL.
Brooklyn Tin veggfóður frá NLXL.

Veggfóður fyrir falleg rými

Þó að lýsing sé í kastljósinu hjá Lýsingu & Hönnun þá er þar einnig hægt að fá dýrindis veggfóður frá hollenska fyrirtækinu NLXL. Um er að ræða gífurlega fallegt og endingargott veggfóður sem setur punktinn yfir i-ið í glæsilegum rýmum.

Lýsing & Hönnun er staðsett að Skipholti 35, 105 Reykjavík.
Opið er mánudaga til föstudaga frá klukkan 10–17 og miðvikudaga frá klukkan 10–18.
Sími: 588-0506.
Netfang: lysingoghonnun@lysingoghonnun.is.
erla@lysingoghonnun.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum