fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
FókusKynning

Ökuskólinn í Mjódd: Löng reynsla og víðtæk starfsemi

Kynning

Eini ökuskólinn sem notar ökuhermi – meirapróf og fleiri leyfispróf

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 10. janúar 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ökuskólinn í Mjódd rekur uppruna sinn til Ökuskóla Ökukennarafélags Íslands sem stofnaður var árið 1967 í aðdraganda að upptöku hægri umferðar hér á landi árið 1968. Skólinn hefur verið til í þessari mynd frá árinu 1999 og er sá staður þar sem einna mest reynsla og þekking í ökukennslu hefur safnast saman.

„Við erum mjög vel tækjum búnir og erum til dæmis eini ökuskólinn á landinu sem notar ökuhermi við kennsluna. Við notum hann við kennslu á sérstökum áhersluatriðum, eins og til dæmis akstri í myrkri, og reynum að nota hann til að innræta fólki hve langa vegalend þurfi til að stöðva bílinn enda verða meira en 30% af umferðaróhöppum hér á landi vegna þess að menn vanreikna vegalengdina sem þeir þurfa til að stoppa bílinn og aka því aftan á næsta bíl,“ segir Guðbrandur Bogason, starfsmaður Ökuskólans í Mjódd. Starfsmenn skólans eru alls 20 og segir Guðbrandur skólann kappkosta að veita sem mest gæði í kennslu og gera nemendur sína meðvitaða um þá ábyrgð sem fylgir því að stýra ökutæki.

„Ef þú ferð ekki rétt með þá heimild sem ökuskírteinið færir þér þá getur þú skaðað fjölda fólks. Þetta er mikið ábyrgðarhlutverk,“ segir Guðbrandur.

Mikil atvinnutækifæri eru fyrir þá sem hafa lokið meiraprófi. Svo sem í ferðaþjónustu og byggingaiðnaði.
Meirapróf Mikil atvinnutækifæri eru fyrir þá sem hafa lokið meiraprófi. Svo sem í ferðaþjónustu og byggingaiðnaði.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Hann segir að Ökuskólinn í Mjódd hafi verið frumkvöðull í mörgum þáttum ökunáms:

„Grunnstarfsemin byggist á ökukennslu til unglinga sem eru að taka bílpróf en síðan höfum við verið með bifhjólanámskeið fyrir stór bifhjól og við erum með námskeið til aukinna ökuréttinda, þ.e. meiraprófs. Þar vorum við frumkvöðlar þegar sú starfsemi fluttist frá ríkinu, en meiraprófið var einokað af ríkinu fram til ársins 1992. Eftir það erum við sá skóli sem helst byggir upp kennslu til meiraprófs,“ segir Guðbrandur.

Auk meiraprófs býður Ökuskólinn í Mjódd upp á námskeið fyrir leigubílstjóra í afleysingum sem tryggja þeim nauðsynleg réttindi og einnig eru í boði leyfishafanámskeið fyrir þá sem vilja gera út leigubíla.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Í náinni framtíð verður krafist símenntunar af þeim sem aka fólksflutninga- og vörubílum og hyggst Ökuskólinn í Mjódd bjóða þeim kennslu sem þurfa á slíkum námskeiðum að halda.

VEFUR ÖKUSKÓLANS Í MJÓDD.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum