fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
FókusKynning

Vandað viðhald húsa viðheldur verðgildi þeirra

Kynning

Stjörnumálun ehf

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 30. júlí 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnumálun ehf. er framsækið og stöndugt verktakafyrirtæki sem getur tekist á við alls kyns krefjandi verkefni af öllumstærðum. Eigendi fyrirtækisins er Ívar Þór Hilmarsson málarameistari og félagi hans í rekstrinum er Marek Ireneusz, málari og verkstjóri. Að sögn Ívars hefur Stjörnumálun ehf. áratuga reynslu í alhliða málningarvinnu og almennu viðhaldi húsa.

Fagmenn og úthugsaðar kostnaðaráætlanir

Ívar leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að húseigendur hugi að reglulegu viðhaldi fasteigna sinna svo verðgildi þeirra rýrist ekki og komið sé í veg fyrir varanlegar skemmdir.

„Vel máluð hús eru einn mikilvægasti þátturinn í að skapa fallega heildarmynd og lífga upp á umhverfið. Fagmenn Stjörnumálunar ehf. ráðleggja og veita aðstoð við efnis- og litaval auk þess sem úthugsaðar kostnaðaráætlanir eru gerðar og verðtilboð út frá þeim. Stjörnumálun ehf. notar einungis efni og málningu sem stenst íslenska veðráttu og við gætum þess að sprungu- og undirvinna sé mjög góð enda tryggja slík vinnubrögð betri endingu.“

Öll almenn viðhaldsvinna – samstarf við iðnaðarmenn

„Við getum gert heildartilboð í viðhaldsvinnu í samstarfi við aðra verktaka, t.d. smiði og múrarara,“ segir Ívar.„Starfsmenn fyrirtækis okkar hafa fjölbreytta menntun og mikla reynslu. Við erum vel búnir tækjum og eigum m.a. fimm þjónustubíla, tíu vinnulyftur og mikið magn af vinnupöllum fyrir stærri útiverk ásamt öllum þeim verkfærum og tækjum sem þarf í öll verk; stór sem smá. Fyrirtækið leigir einnig út vinnulyfturnar og palla.

Hjá fyrirtækinu starfa allt að 30 manns, eftir verkefnastöðu hverju sinni, og höfum við tekið að okkur ýmis verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, húsfélög og einstaklinga. Fyrirtækið er með lagerhúsnæði í Hafnarfirði og er aðili að Samtökum iðnaðarins og gjaldgengt í ábyrgðarsjóð MSI.“

Ein fullkomnasta háþrýstiþvottavélin

Stjörnumálun býr svo vel að vera með eina fullkomnustu háþrýstiþvottavél sem völ er á. Boðið er upp á háþrýstiþvott með 200 – 500 bar. dælu með 120°C heitu vatni eða köldu. Fyrirtækið getur því tekið að sé að þvo veggjakrot og alla málningu af húsum, bílaplönum, gangstéttum og ýmsu fleiru. „Viðskiptavinir Stjörnumálunar ehf. eru orðnir töluvert margir en fyrirtækið hefur unnið verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, bæjarfélög, húsfélög, einstaklinga og ýmis félagasamtök,“ segir Ívar að lokum.

Vefsíða Stjörnumálunnar

Einnig er hægt að hafa beint samband í síma 869-5302 eða á netfangið stjornumalun@stjornumalun.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
Kynning
16.06.2023

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt
Kynning
04.05.2023

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS