fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
FókusKynning

Málningarþjónustan á Selfossi: 50 ára afmæli framundan

Kynning

Rótgróið og traust fjölskyldufyrirtæki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 25. apríl 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 6. júní næstkomandi fagnar Málningarþjónustan á Selfossi hálfrar aldar afmæli sínu og er því óhætt að gera því skóna að fyrirtækið sé með þeim elstu sinnar tegundar á landinu. Steindór Pálsson málarameistari segir lesendum DV frá því að stofnandi fyrirtækisins, Páll Árnason, hafi lært að mála hjá Kaupfélagi Árnesinga á sínum tíma en hafi síðan vent sínu kvæði í kross, stofnaði eigið fyrirtæki og var þar með kominn í samkeppni við sjálft Kaupfélagið.
Málningarþjónustunni vel tekið frá fyrsta degi

„Það þurfti áræðni og hugrekki fyrir einyrkja að fara þessa leið,“ segir Steindór. „Fyrsta haustið sem Páll starfaði sjálfstætt var hann með málningarflokk sem samanstóð af þremur til fjórum mönnum, en nú árið 2016, hafa yfir hundrað manns starfað hjá fyrirtækinu í gegnum tíðina, í lengri eða skemmri tíma. Það var hvorki sjálfgefið né auðvelt að fara út í samkeppni við Kaupfélag Árnesinga á sínum tíma og má því segja að Páll hafi verið brautryðjandi hvað það varðar. Viðskiptavinirnir voru frá upphafi bæði einstaklingar og fyrirtæki á Selfossi og nágrenni.“

Rótgróið og traust fjölskyldufyrirtæki

Að sögn Steindórs hefur Málningarþjónustan á Selfossi lengst af verið í viðskiptum við Málningu hf., þó svo að fleiri birgjar hafi nú bæst við.

„Það er vissulega búið að vera mjög gaman að starfa við þetta fyrirtæki. Og í gegnum það hefur maður kynnst fjöldanum öllum af skemmtilegu og góðu fólki. Við höfum mikið starfað um landið vítt og breitt en þó mest á Suðurlandinu. Það er gefandi að starfa hjá rótgrónu og traustu fjölskyldufyrirtæki sem er í dag með dreifða eignaraðild meðal starfsmanna sem sumir hverjir hafa starfað hér áratugum saman. Í tilefni tímamótanna langar mig til þess að þakka öllum okkar traustu viðskiptavinum fyrir samstarfið svo og starfsmönnum fyrirtækisins í gegnum tíðina,“ segir Steindór.

Málningarþjónustan á Selfossi
Gagnheiði 47
800 Selfoss
Sími: 899-1775
Málningarþjónustan á Facebook

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum