fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025

Er Sindra í nöp við feitar konur?

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. mars 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sindri og Tara Margrét 

Svarthöfði brá sér í heita pottinn í vikunni þar sem hópur fólks ræddi umdeilt viðtal Sindra Sindrasonar, sjónvarpsmanns á Stöð 2, þegar hann grillaði í beinni Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar í Reykjavík. Þórdís mætti í jákvæð og glaðhlakkaleg í settið hjá Sindra en fljótlega runnu á hana tvær grímur.

Sindri þjarmaði vel að Þórdísi og var ekki hrifinn af svörum hennar. „Þórdís, þú segir ekki neitt. Þetta er rosalega lítið,“ sagði Sindri og hló hátt og snjallt við einu svari Þórdísar. Egill Helgason hefur komið Þórdísi til varnar og kveðst ekki viss um að fólk sem sé á sínum fyrsta degi í framboði og nýtt í stjórnmálum eigi skilið slíkar „trakteringar“. Þór Saari, fyrrverandi formaður þingflokks Hreyfingarinnar, sagði aðfarir Sindra eiga fyllilega rétt á sér og Viðreisn ætti ekkert erindi í borgarmálin með „þessari konu.“

Viðtalið minnti nokkuð á það þegar Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, mætti Sindra í sjónvarpssal til að ræða fitufordóma. Þar lenti Töru og Sindra saman eftir að hún sagði Sindra vera í forréttindastöðu. Sindri brást við því með því að spyrja hvort Tara vissi hvað hann væri í mörgum minnihlutahópum. „Ég er hommi, ég á litað barn, það er ættleitt, ég er fyrsti samkynhneigði maðurinn til að ættleiða á Íslandi, ég er giftur útlendingi – eða hálfum útlendingi – þannig að við skulum ekki fara þangað,“ sagði Sindri og Tara svaraði á móti: „Það er miklu meira samfélagslegt samþykki fyrir fordómum gegn feitu fólki.“

Þórdís fékk svo á baukinn hjá Sindra í vikunni og þegar hún kvaðst vera ákveðin í að láta til sín taka sagði Sindri: „Þetta segir okkur samt ofboðslega lítið. Er ekkert svona eitt sem þú vilt segja áhorfendum; þetta hefur ekki verið nógu vel gert, við viljum ráðast í þetta? Komdu með eitt.“ Þórdís svaraði: „Besta borg í Evrópu, er það ekki flottur mælikvarði?“ Sindri svaraði: „Þórdís, þú segir ekki neitt. Þetta er rosalega lítið.“

Um þetta var rætt í heita pottinum og voru pottverjar á því að Þórdís og Tara væru báðar klárar og glæsilegar konur sem ættu það líka sameiginlegt að vera í yfirþyngd. Feitar er orðið sem Tara vill að sé notað. Þá er nokkur svipur með Töru og Þórdísi. Enginn hefur fengið jafn mikið fyrir ferðina hjá Sindra og þær Tara og Þórdís. Það er því engin furða að fólkið í heita pottinum spyrji: Er Sindra í nöp við feitar konur?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn