Árið 1852 – Vagnaframleiðslufyrirtækið Studebaker Brothers er stofnað. Fyrirtækið varð síðar grunnur bílaframleiðandans Studebaker.
Árið 1899 – Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, fyrsta knattspyrnufélag Íslands er stofnað.
Árið 1933 – Blaine-lögin, kennd við öldungadeildarþingmanninn John J. Blaine, taka gildi í Bandaríkjunum og með þeim heyrði áfengisbannið, sem hófst 1920, sögunni til.
Árið 1959 – Fidel Castro verður forsætisráðherra Kúbu eftir að einræðisherranum Fulgencio Batista er steypt af stóli. Castro hélt um stjórnvölinn í landinu allt til 2008 þegar hann settist í helgan stein. Hann andaðist 25. nóvember 2016.
Árið 1985 – Hezbollah-samtökin eru stofnuð.
Árið 1987 – Réttarhöld yfir John Demjanjuk hefjast í Jerúsalem. Demjanjuk var sakaður um að vera hinn alræmdi „Ívan grimmi“, nasisti og vörður í Treblinka-útrýmingarbúðunum norðaustur af Varsjá í Póllandi. Niðurstaðan var að Demjanjuk væri umræddur vörður og var hann dæmdur til að hengjast. Málinu var áfrýjað og árið 1993 sneri Hæstiréttur Ísrael dómnum. Niðurstaðan byggði á vitnisburði 37 fyrrverandi varða í Treblinka sem sögðu að „Ívan grimmi“ hefði verið vörður að nafni Ivan Marchenko.