fbpx
Mánudagur 30.júní 2025

Kynlífsstunur trufluðu tennisleik: „Þetta getur ekki verið svona gott!“

Lýsendur héldu fyrst að áhorfandi væri að horfa á klám – Annað kom á daginn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. apríl 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tennis hefur það orð á sér að vera fremur íhaldssöm og stíf íþrótt yfirstéttar í Bandaríkjunum, en það varð frekar létt yfir leik Frances Tiafoe og Mitchell Krueger á Sarasota Open tennismótinu á þriðjudagskvöld, einkum og sér í lagi vegna sérstakrar uppákomu í miðjum leik.

Kynlífshljóð og stunur tóku að berast inn á völlinn og héldu lýsendur keppninnar fyrst að hljóðin væru að koma úr farsíma áhorfenda, sem þá átti væntanlega að vera að laumast til að horfa á klám. Það reyndist þó ekki rétt.

„Nei, gott fólk. Þetta er ekki sími. Þetta kemur frá íbúð, hinumegin við vatnið.“

Hljóðin fóru ekki fram hjá tennisspilurunum heldur og mátti heyra Tiafoe hrópa:

„Þetta getur ekki verið svona gott!“

Svo fór að Tiafoe vann leikinn, en senuþjófarnir voru án nokkurs vafa hið háværa par.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem New York Post birti af atvikinu:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arsenal sagt komið í slaginn við önnur stórlið um franska framherjann

Arsenal sagt komið í slaginn við önnur stórlið um franska framherjann
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Missti 68 kíló á Ozempic – „Ég er líka að missa minnið, sjónina og heyrnina“

Missti 68 kíló á Ozempic – „Ég er líka að missa minnið, sjónina og heyrnina“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar