fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Rúmenskur hórmangari á Akureyri nýtti sér spilakassa í annarlegum tilgangi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 2. apríl 2026 16:30

Akureyri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem allt bendir til að sé ættaður frá Rúmeníu hefur verið ákærður fyrir að hafa tekjur af vændi annara og peningaþvætti, meðal annars með því að nýta sér spilakassa Happdrættis Háskóla Íslands. Vændisstarfsemin fór fram á Akureyri og víðar um land en það er lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem leggur ákæruna fram.

Maðurinn er með rúmenskt nafn og er um fertugt. Samkvæmt ákærunni er hann með íslenska kennitölu og var áður skráður til heimilis í Reykjavík. Hann er nú skráður með lögheimili í útlöndum en samkvæmt ákærunni er talið sennilegt að hann búi í Rúmeníu.

Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta manninum ákæruna.

Samkvæmt ákærunni hafði maðurinn frá október 2023 til 20. október 2024 atvinnu og tekjur af því að hafa milligöngu og aðstoða aðila sem voru að selja vændi á Akureyri og annars staðar á Íslandi. Milligangan hafi falist meðal annars í því að vera í samskiptum við vændiskaupendur, skipuleggja ferðir vændisfólks til landsins og panta hótelherbergi fyrir vændisstarfsemina.

Spilakassar

Maðurinn er síðan ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa frá 22. október 2023 til 22. október 2024, tekið við, nýtt og aflað sér ávinnings að fjárhæð 5.681.787 krónur, með vændi annarra, eða annarri ólöglegri starfsemi, og meðal annars umbreytt slíkum ávinningi og flutt hann og geymt. Ávinningurinn sé talinn stafa aðallega af vændisstarfseminni sem maðurinn hafi séð um að skipuleggja og hafa milligöngu um. Hann hafi umbreytt hagnaði af starfseminni í lögmætt fjármagn með því til dæmis að leggja peningana inn á eigin bankareikninga og nýta sér spilakassa Happdrættis Háskóla Íslands til peningaþvættis.

Með ákærunni fylgir sundurliðun á fjárstreymi inn á fjóra bankareikinga mannsins hérlendis, tvo í Landsbankanum, einn í Arion banka og einn í Íslandsbanka. Tíundaðar eru óútskýrðar greiðslur frá einstaklingum, óútskýrðar innlagnir mannsins sjálfs í reiðufé, óútskýrðar reiðufjárinnlagnir í erlendum gjaldeyri og óútskýrðar innlagnir frá Háskóla Íslands en þar er væntanlega átt við spilakassana. Upphæðin í síðastnefnda flokknum nemur samtals um einni og hálfri milljón króna. Óútskýrðar greiðslur inn á reikninga mannsins, samkvæmt sundurliðuninni, námu samtals eins og áður segir um 5,7 milljónum króna og samkvæmt ákærunni er þar um ávinning af milligöngu um vændi að ræða.

Þess er einnig getið í ákærunni að þegar maðurinn var handtekinn hafi verið haldlagðar hjá honum 175.280 krónur en hvaðan þeir fjármunir hafi komið sé óútskýrt.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og sæti upptöku á ávinningnum af vændisstarfseminni og fénu sem fannst hjá honum þegar hann var handtekinn.

Málið verður tekið fyrir við Héraðsdóm Norðurlands eystra í maí næstkomandi. Mæti maðurinn ekki verður það metið sem ígildi játningar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar