fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Rússar sem unnu fyrir Ísland fá lífeyri

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 20:00

Utanríkisráðuneytið, við Reykjastræti í Reykjavík. Mynd: Facebook-Utanríkisráðuneytið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur svarað fyrirspurn Ingibjargar Davíðsdóttur þingmanns Miðflokksins sem spurði ráðherrann ýmissa spurninga um lokun sendiráðs Íslands í Rússlandi. Meðal annars spurði Ingibjörg um afdrif þeirra rússnesku borgara sem störfuðu í sendiráðinu en í svari ráðherrans segir að íslenska ríkið borgi staðarráðnum fyrrverandi starfsmönnum sendiráðsins lífeyri.

Starfsemi sendiráðsins var lögð niður, eins og það var orðað þá, um mitt ár 2023 en það var þáverandi utanríkisráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem tók ákvörðun um að það skyldi gert.

Ingibjörg lagði í febrúar síðastliðnum fram fyrirspurn um þesssa ákvörðun, í alls ellefu liðum. Spurði hún meðal annars um afdrif staðarráðins starfsfólks sendiráðsins. Síðar var greint frá því að ein af ástæðum þess að starfseminni var hætt hafi verið ógnanir í garð starfsfólks sendiráðsins. Hún spurði hvernig var staðið að lokun þess. Hvaða greiningar og ráðlegginar lágu að baki ákvörðuninni og hvernig staðið var að henni.

Þingmaðurinn spurði sömuleiðis hvort hefði verið haft samráð við önnur ríki. Hún vildi vita hverjar voru ástæður þess að talið var rétt að loka sendiráði Íslands í Moskvu og hvort það væri rétt að ein af ástæðum lokunar sendiráðsins hafi verið öryggi starfsmanna og ef svo hafi verið, hvort það hafi verið í fyrsta sinn sem ástæða var til að hafa áhyggjur af öryggi eða aðbúnaði starfsmanna sendiráðsins.

Fólkið

Ingibjörg spurði einnig um húsnæðismál og hvort sendiráðið og bústaður sendiherra hafi verið í eigu íslenska ríkisins eða í leiguhúsnæði og hvernig staða slíkra eigna væri eða ef um leiguhúsnæði var að ræða hvort samningum um það hafi verið sagt upp. Spurði hún einnig hvort Ísland hefði einhver útgjöld af starfsemi í Moskvu og hvernig samskiptum við Rússland hafi verið háttað eftir lokunina.

Loks spurði þingmaðurinn um afdrif staðarráðins starfsfólks sendiráðsins og hvort sérstaklega hafi verið hugað að velferð þessara einstaklinga og þá hvernig.

Í svari Þorgerðar Katrínar kemur fram að ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu tímabundið hafi verið byggð á heildarmati á hagsmunum Íslands í ljósi þess að viðskiptaleg, menningarleg og stjórnmálaleg tengsl Íslands og Rússlands hafi verið hverfandi sem og borgaraþjónusta í Moskvu. Hafi skilvirkni og forgangsröðun í utanríkisþjónustunni verið höfð að leiðarljósi í þessu heildarmati sem og öryggi starfsmanna sendiráðsins sem tiltekin atvik hafi gefið aukna ástæðu til. Hvers eðlis þau atvik voru kemur ekki fram.

Á grundvelli þessa heildarmats hafi niðurstaðan verið sú að forsendur fyrir rekstri sendiráðs í Moskvu væru gjörbreyttar og í ljósi þessa hafi þáverandi utanríkisráðherra tekið ákvörðun um að leggja starfsemina niður. Ráðherra hafi borið upp minnisblað þess efnis í ríkisstjórn þann 9. júní 2023 og kynnt ákvörðunina á fundi utanríkismálanefndar Alþingis sama dag.

Sagt upp

Segir enn fremur í svarinu að sendiráðið og embættisbústaður sendiherra hafi verið leigð af rússneskum yfirvöldum, leigusamningum hafi verið sagt upp þegar starfsemin var stöðvuð. Starfslokasamningar hafi verið gerðir við allt staðarráðið starfsfólk sem falið hafi í sér greiðslur er námu 12–18 mánaða launum miðað við starfsreynslu. Íslenska ríkið sé ekki með neina eign á leigu og hafi engin útgjöld af starfsemi í Moskvu nú sem stendur fyrir utan skuldbindingar vegna lífeyris fyrrverandi starfsmanna.

Hversu marga fyrrum starfsmenn er þar um að ræða kemur ekki fram og ekkert er minnst á upphæðir. Segir í svarinu að gerðar hafi verið ráðstafanir til að standa skil á þessum skuldbindingum sem framhald verði á þar sem starfsemi í sendiráðinu hafi ekki hafist á nýjan leik. Fyrirsvari gagnvart Rússlandi hafi verið sinnt frá utanríkisráðuneytinu frá því að starfsemin var lögð niður.

Umtalsverð samskipti hafi verið á milli líkt þenkjandi ríkja á þessum tíma varðandi starfsemi sendiráða þeirra í Moskvu sem og sendiráða Rússlands í höfuðborgum þeirra. Ólíkt Íslandi hafi verið ljóst að önnur ríki hafi verið í þeirri stöðu að geta dregið verulega úr starfsemi sendiráða sinna í Moskvu án þess að leggja starfsemina niður. Þetta er ekki skýrt nánar en í lokin er vísað í skýrslur utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál fyrir árin 2023 og 2022. Í skýrslunum kemur þó lítið annað fram um stöðvun starfsemi sendiráðsins annað en vísun til þess að samskipti Íslands og Rússlands hafi á þessi tímapunkti verið í algjöru lágmarki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar