fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Grímur segir kókaín og vændiskaup Íslendinga ástæðuna fyrir fjölda útlendinga í fangelsunum – „Burðardýrin og fótgönguliðar undirheimanna“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 16:30

Grímur er ómyrkur í máli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir þá útlendinga sem dvelja í fangelsum landsins að stórum hluta vera burðardýr eða aðra sem starfa í neðanjarðarhagkerfinu. Þetta kerfi sé knúið áfram af efri- og millistéttinni í landinu sem hafi óseðjandi eftirspurn eftir kókaíni og vændi.

„Umræða um fólk sem öðruvísi á litinn en meðal Þingeyingurinn er ógeðfelld í meira lagi,“ segir Grímur í færslu á samfélagsmiðlum í dag.

Vísar hann í grein Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að ríkisstjórnin hefði tekið af skarið í útlendingamálum og svo í hlaðvarp Þórarins Hjartarsonar þar sem fjallað er um „hinn nýja veruleika“ í kjölfar Hamas fréttar Morgunblaðsins, sem reyndist vera falsfrétt.

„Fangelsin eru full af erlendum glæpamönnum sem dómsmálaráðherra er alveg blóðugur upp fyrir axlir að sýna hörku gagnvart. Og Íslendingar verða sannfærðari og sannfærðari um að brúnt fólk sé meinsemdin í íslensku samfélagi,“ segir Grímur. „En hvaða erlenda fólk er það sem situr í fangelsum á Íslandi og hvers vegna?“

Íslendingar kaupa kókaín og vændi

Annars vegar séu þetta einstaklingar sem komu hingað en fengu ekki landvistarleyfi og bíða brottvísunar. Hins vegar séu þetta burðardýr og einstaklingar sem tilheyra neðanjarðarhagkerfinu, svokölluðum undirheimum.

„Í þessum undirheimum snúast viðskiptin mest um fíkniefni og vændi. Rannsóknir benda til þess að eftirspurnin sé drifin áfram af milli- og efristéttinni í landinu. Íslendingar kaupa sér nefnilega kókaín og kynlíf í meira mæli en nokkru sinni fyrr,“ segir Grímur. „Burðardýrin og fótgönguliðar undirheimanna er fólkið frá útlöndum sem situr í fangelsunum. Það sem viðheldur þessu er eftirspurn Íslendinga eftir því sem er á þessum markaði.“

Hreinsunarátak til heimabrúks

Þá segir hann að „hreinsunarátak“ dómsmálaráðherrans sé aðeins til heimabrúks og skipti í raun og veru engu máli.

„Skiptir engu hversu margir voru teknir á Laugaveginum í gær og sendir rakleiðis til útlanda – eins og lögreglan tilkynnti á Facebook í fyrradag. Kókaínnasirnar og viðskiptavinir kampavínsklúbbanna þurfa sitt,“ segir hann.

Andstyggilegur rasismi

Ef fólk hafi ekki áttað sig á þessu enn þá viðhaldi refsistefnan gagnvart fíkniefnum jaðarsetningu fólks og heldur því í þrældómi.

„Að kenna brúnu fólki um nýjan veruleika á Íslandi er andstyggilegur rasismi og ekkert annað. Spyrjið bara fólkið í Mexíkó og á valmúaökrum Afganistans fyrir hvern það er að þræla,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn