

Leikarinn James Van Der Beek hefði orðið 49 ára í gær, en hann lést 11. febrúar síðastliðinn eftir tveggja ára baráttu við ristilkrabbamein.
Van Der Beek skildi eftir sig eiginkonu og sex börn og minntist fjölskyldan hans á afmælisdaginn með því að birta myndir og myndbönd á samfélagsmiðlum.
Níu ára gömul dóttir hans, Emilia, minntist föður síns með myndbandi sem móðir hennar deildi á Instagram þar sem Emilia deildi ráðum sínum til að takast á við sorgina.
„Hæ, ég heiti Emilia Van Der Beek. Eins og þið vitið líklega öll er pabbi minn látinn. En ég ætla bara að gefa ykkur lítil ráð, allt sem hjálpar ykkur að komast í gegnum andlát einhvers sem þið elskið.
Í dag er afmælisdagur pabba míns og það fyrsta sem skiptir máli þegar einhver er látinn er að tala við viðkomandi og setja tilfinningar sínar út. Ef maður saknar hans má gráta. Maður má tala við hann. Ég tala við pabba á hverjum degi og byrja á setningu og segi: „Hæ pabbi, ég sakna þín. Ég elska þig svo mikið og ég mun aldrei hætta að elska þig.“

Emilia heldur áfram og segist segja föður sínum frá deginum sínum og hvernig henni líði. Hún segist einnig segja fjölskyldu sinni frá líðan sinni.
„Og ég veit að hann heyrir í mér, en ég heyri ekki í honum. Mamma mín getur það. Þú verður bara að finna fyrir þeim, því þau eru í hjarta þínu. Þau eru að horfa á þig, þau eru hluti af líkama þínum og þau eru á góðum stað, hann finnur ekki fyrir sársauka lengur. Hann er á himnum yfir skýjunum með Guði, og hann getur bara grátið. Grátið, grátið, grátið. Þú getur verið glöð að þau séu á góðum stað, þú getur verið dapur vegna þess að þú saknar þeirra. Þú getur verið reiður, en ekki kenna sjálfum þér um.“
Emilia segir að aðrir geti ekki vitað hvernig manni líður í sorginni. Tekur hún dæmi um að ef einhver elskar hundinn sinn og segir „Ég veit hvernig þér líður, mér líður verr“ þá geti viðkomandi ekki vitað það. Allir syrgi með mismunandi hætti.
„Allir hafa mismunandi tilfinningar í líkamanum og þeir tjá þær á mismunandi vegu. Og láttu engan segja þér að það sé eins og: „Nei, þú veist ekki hvernig mér líður.“
View this post on Instagram
Hún segir alla deyja og allt gerast af ástæðu:
„Og þetta er erfitt. Það verður erfitt, og jafnvel þótt þú heyrir að viðkomandi sé að deyja, þá er það í lagi. Ef þeir gera það, þá er það kraftaverk. Samt sem áður á allt að gerast af ástæðu. Eitthvað sem pabbi minn sagði mér var, ef þetta gengur ekki eins og hann vildi og eins og við vildum, fyrir hann í lífinu, þá verð ég samt að trúa á kraftaverk. Kraftaverk geta samt gerst, bara síðar á ævinni, og þau halda áfram að gerast. En þegar þú vilt að þau gerist, þá gætu þau ekki gerst. En ef þau deyja, ef þau fara, mundu bara að þau eiga verk að vinna hinum megin. Og líka, eitthvað sem ég hef gert eftir að pabbi minn lést, er að ég stal hattinum hans. Stal einhverju sem þeir áttu og hélt því bara. Hattur pabba míns lyktar af honum og ég elska hann svo mikið.“
Emilia segir marga hafa elskað föður hennar og þakkar þeim sem styrktu söfnun fyrir fjölsjylduna:
„Ég hrósa pabba mínum. Ég veit að hann var góður maður. Margir elskuðu hann og fólk bað fyrir honum, og hann var elskaður af mörgum. Einnig ef þú gafst til fjáröflunar Kimberley Van Der Beek, þakka þér kærlega fyrir. Þakka þér kærlega fyrir. Ég er alveg orðlaus.“