fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 9. mars 2026 16:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup er meirihluti landsmanna hlynntur þjóðaratkvæðisgreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, eða 57 prósent. Ríflega 30 prósent eru andvíg og 12 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg.

Karlar fremur en konur eru andvígir þjóðaratkvæðagreiðslunni. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru frekar hlynntir en íbúar á landsbyggðinni. Fólk með háskólamenntun er líklegra til að vera hlynnt en fólk með minni menntun að baki. Kjósendur ríkisstjórnarflokkanna eru líklegastir til að vera hlynntir en kjósendur Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins eru líklegastir til að vera andvígir.

Landsmenn skiptast svo í tvo álíka stóra hópa þegar kemur að því hvernig þeir myndu kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Rúmlega 52 prósent telja líklegt að þau muni kjósa með því að halda aðildarviðræðum áfram en tæplega 48 prósent telja að þau muni kjósa með því að hætta viðræðunum.

Konur frekar en karlar myndu kjósa með áframhaldandi aðildarviðræðum. Það sama á við um höfuðborgarbúa sem eru líklegri en landsbyggðarbúar til að kjósa já.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum