fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Sakar Sigmund Davíð og Óla Björn um „ótrúlega ósvífna hræsni“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. mars 2026 12:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson, segir það ósvífna hræsni að saka forsætisráðherra um kosningasvik vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðisgreiðslu um hvort aðildarviðræður verði hafnar við Evrópusambandið að nýju. Sérstaklega þegar ásakanir komi frá aðilum sem hafa sjálfir svikið kjósendur.

„Það er alveg ótrúlega ósvífin hræsni hjá mönnum eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Óli Björn Kárason að tala um það sem einhvers konar kosningasvik hjá Kristrúnu Frostadóttur að hafa sagt fyrir kosningar að aðildarviðræður við ESB væru ekki sérstaklega á dagskrá hjá henni.

Þegar þessir sömu menn mynduðu ríkisstjórn árið 2013 sem hafði gefið kýrskýr kosningaloforð um að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og sviku það loforð síðan blákalt.“

Viktor rifjar upp að fyrir kosningarnar 2013 hafi Sigmundur orðrétt sagt að almenningur ætti að ráða því hvort viðræðunum yrði haldið áfram og að þjóðaratkvæðagreiðsla myndi fara fram.

„Þannig að núverandi ríkisstjórn er bara að efna 13 ára gamalt kosningaloforð Sigmundar og Sjálfstæðisflokksins sem þau sviku þjóðina um þá.
Og svo það sé alveg skýrt þá er eitt að lofa því að flokkur muni ekki gera eitthvað í ríkisstjórn og allt annað að segja að það sé ekki sérstakt áhersluatriði hjá flokknum.“

Varla hafi það farið framhjá Sigmundi og Óla Birni að Viðreisn hafi lagt sérstaka áherslu á þjóðaratkvæðisgreiðslu um ESB í sinni kosningabaráttu.

„Þegar þau svo mynda ríkisstjórn með flokki sem hafði ekki sett það á oddinn, en er fylgjandi ESB-aðild, þá er nákvæmlega ekkert óeðlilegt eða óviðbúið við að það sé niðurstaða meirihlutaviðræðna þeirra.“

Við þetta má svo bæta að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, frá 21. desember 2024 kemur fram:

„Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram eigi síðar en árið 2027.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Valgarður lýsir áhyggjum sínum: Hikar við að leggja sömu verkefni fyrir nemendur sína og hann gerði áður

Valgarður lýsir áhyggjum sínum: Hikar við að leggja sömu verkefni fyrir nemendur sína og hann gerði áður
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum