fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Opnar dyr að bernskuminningum Elísabetar

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 13:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu síðdegis, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?

Sunnudaginn 8. mars býður Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, gestum og gangandi með í heillandi könnunarferð um bernskuna, þegar hún les upp úr skáldævisögunni Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal.

Bókin segir af stúlkunni Ellu Stínu sem skellir sér í frí með fjölskyldunni til Grikklands og skottast þar um allt með yngri bræður sína á meðan foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna snýr Ella Stína aftur til Grikklands og veltir þá fyrir sér hvað hafi orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var.

Límonaði frá Díafani var mest lesna og lánaða bókin í flokki ævisagna og bóka almenns efnis árið 2025 á Borgarbókasafninu, en hún hefur fengið góða dóma og þykir kallast á við fyrri verk Elísabetar Saknaðarilm og Aprílsólarkulda sem slógu rækilega í gegn.

Upplesturinn úr bókinni er liður í nýrri viðburðaröð Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal sem ber heitið Húslestur. Þar er lesið upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og gefst gestum tækifæri til að setjast niður og njóta upplesturs í notalegu umhverfi í flutningi Sunnu Dísar. Að lestri loknum gefst svo kostur á léttu spjalli fyrir þau sem vilja staldra við og ræða verkin.

Húslestur á sunnudag hefst kl. 16:00.

Ókeypis er inn á viðburðinn og öll hjartanlega velkomin.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum