fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Verulega ósáttur við grundvallarbreytingar á bílskúrum

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 11:30

Mynd: Eyþór. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi íbúðar í fjöleignarhúsi í Vesturbæ Reykjavíkur hefur kært framkvæmdir tveggja annarra eigenda íbúða í húsinu. Snúast framkvæmdirnar um að breyta tveimur bílskúrum á lóðinni, í þeirra eigu, í vinnustofur. Segir hinn ósátti eigandi að breytingarnar muni hafa veruleg áhrif á hann og samkvæmt lögum hafi átt að leita samþykkis hans, sem hafi ekki verið veitt, en þrátt fyrir það hafi Reykjavíkurborg veitt byggingarleyfi.

Kæran hefur verið lögð fram til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og um leið fór hinn ósátti eigandi fram á að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar.

Nánar til tekið er það ákvörðun byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir framkvæmdunum sem er kærð.

Í kærunni kemur fram að leyfið til breytinga á bílskúrunum var veitt í ágúst síðastliðnum. Þar segir enn fremur að samkvæmt aðaluppdrætti snúist framkvæmdirnar um að breyta framhlið bílskúranna þannig að bílskúrðshurðir verði fjarlægðar og í stað þeirra settar hefðbundnar útidyr og gluggar. Að auki sé notkun breytt úr bílskúrum í vinnustofur.

Framkvæmdirnar voru kynntar á húsfundi í september og á fundinum voru teikningar lagðar fram. Hinn ósátti eigandi veitti ekki samþykki sitt fyrir framkvæmdunum og telur að til að þær geti orðið að veruleika verði að liggja fyrir samþykki allra eigenda, samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Samkvæmt kærunni ætluðu eigendur bílskúranna þrátt fyrir þetta að hefja framkvæmdir og þá hafi síðasta haust verið leitað álits hjá kærunefnd húsamála sem sé enn með málið til meðferðar.

Byrjuðu samt

Í kærunni segir að framkvæmdir hafi síðan verið hafnar í lok janúar síðastliðins með vísan til heimildar frá Reykjavíkurborg.

Hinn ósátti eigandi segir að breytingar á bílskúrunum muni hafa veruleg áhrif á hann enda séu þeir um tvo og hálfan metra frá stofuglugga íbúðar hans. Útsýni muni því breytast verulega og breyting bílskúranna í vinnustofur muni hafa í för með sér aukinn umgang fólks.

Rökstyður hann kröfu sína um að heimild borgarinnar verði felld úr gildi meðal annars með því að samþykki meðeigenda í húsinu skorti og það gangi gegn ákvæðum laga um fjöleignarhús.

Eru færð í kærunni, sem samin er af lögmanni mannsins, ítarleg rök fyrir því að samkvæmt lögunum og áliti kærunefndar húsamála, í sambærilegu máli, eigi kærandinn og annar eigandi í húsinu, sem veitti ekki samþykki sitt fyrir framkvæmdunum, sinn atkvæðarétt. Er bent á að samkvæmt fjöleignarhúsalögunum verði allir eigendur að veita samþykki sitt fyrir verulegum breytingum á sameign og það eigi við í þessu tilfelli. Fella yrði því heimild borgarinnar til framkvæmdanna úr gildi þar sem gögn um samþykki meðeigenda hefðu ekki fylgt með umsókn um leyfi til breytinganna á bílskúrunum.

Ekki stoppað

Samhliða kröfu um að heimild til framkvæmdanna yrði felld úr gildi var þess krafist að þær yrðu stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar.

Nefndin segir hins vegar að þar sem kæra til hennar fresti yfirleitt ekki réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar og að stöðvun framkvæmda muni hafa í för með sér tjón fyrir leyfishafa og að um sé að ræða afturkræfar framkvæmdir, verði ekki talin knýjandi þörf á að stöðva þær.

Munu því framkvæmdirnar halda áfram á meðan kæran er til meðferðar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu
Fréttir
Í gær

Stefán Pálsson lýsir raunum félaga síns – „Af hverju gerum við allt svona illa?”

Stefán Pálsson lýsir raunum félaga síns – „Af hverju gerum við allt svona illa?”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slys og Hellisheiðinni lokað – Uppfært: Heiðin opin á ný

Slys og Hellisheiðinni lokað – Uppfært: Heiðin opin á ný
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Uppfært: Bíllinn er fundinn. Sendibíl Samhjálpar stolið í nótt – Allar ábendingar vel þegnar

Uppfært: Bíllinn er fundinn. Sendibíl Samhjálpar stolið í nótt – Allar ábendingar vel þegnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“