fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Konu stefnt til greiðslu skuldar – Seldi bílinn áfram í stað þess að borga hann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. mars 2026 19:30

Audi A3 Sportback E-tron. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur stefnt konu á fimmugsaldri fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til innheimtu á kaupverði fyrir bíl.

Málavextir eru þeir að fyrirtækið hlutaðist til um að selja bíl í eigu sinni af gerðinni Audi A3 Sportback e-tron. Konan falaðist eftir bílnum og vegna vinnuréttarsambands var samið um að hún fengi hann afhenta áður en kæmi til formlegra eigendaskipta og greiðslu kaupverðs, sem skyldi vera kr. 3.740.000. Fyrirtækið greiddi vátryggingar og bifreiðagjöld allt til þess dags að formleg eigendaskipti fóru fram þann 28. apríl 2023, en við það tímamark var umsamið að konan greiddi kaupverðið. Konan greiddi hvorki kaupverðið þá né síðar.

Þegar konan var aðvöruð um að kaupunum yrði rift vegna vanefnda  greið hún til þess ráðs að áframselja bílinn til þriðja aðila og hefur bíllinn síðan gengið kaupum og sölum. Hefur fyrirtækið því afráðið að falla frá áformum um riftingu en heldur við kröfu um greiðslu kaupverðs auk dráttarvaxta.

Stefna málsins er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta konunni stefnuna, en hún er óstaðsett í hús.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 21. apríl næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“