fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. mars 2026 07:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sjö menn í hverfi 105 fyrir meiriháttar líkamsárás. Þeir voru allir vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

Þetta kemur fram í skeyti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar en frekari upplýsingar um árásina koma ekki fram. Alls gista ellefu fangageymslu lögreglu eftir nóttina og eru alls 54 mál skráð í kerfum lögreglu.

Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um tvær aðrar minniháttar líkamsárásir og eru tveir í haldi vegna þeirra.

Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, var svo tilkynnt um enn aðra líkamsárásina. Að sögn lögreglu var gerandi farinn af vettvangi en lögregla mun vita hver viðkomandi er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“