fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Telur sig hafa fundið sjálfan Ívar beinlausa

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 4. mars 2026 21:30

Danski leikarinn Alex Høgh Andersen lék Ívar beinlausa í þáttunum Vikings.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskur fornleifafræðingur, Steve Dickinson að nafni, telur sig hafa fundið gröf sjálfs Ívars beinlausa. Ívar var víkingahöfðingi og goðsagnakennd persóna og sonur Ragnars loðbrókar.

Dickinson þessi, sem starfar sjálfstætt, hefur fundið haug í Kúmbríu, í norðvestur hluta Englands, sem hann telur vera skipshaug. En það voru aðeins konungborið fólk og stórmenni sem voru heygð í skipum.

Dickinson og starfsfólk hans notaði miðaldahandrit til þess að finna staðsetninguna. Fann hann þennan tiltekna haug innan um 39 minni. Þegar hafa fundist árar og aðrir hlutar úr skipi í haugnum. En skipshaugar hafa langflestir fundist í Skandinavíu.

„Þetta er sjaldgæft, og ef kenning mín er rétt, þá er þetta fyrsta slíka víkingaskipið sem finnst í Bretlandi,“ segir Dickinson við sjónvarpsstöðina Fox News.

Til er skipsgröf í Sutton Hoo, austan við Ipswich á austurströnd Englands, en hún kemur frá Söxum en ekki víkingum.

Ívar Ragnarsson, eða Ívar beinlausi, var sonur víkingahöfðingjans Ragnars loðbrókar og leiddi innrásir á Bretlandi og Írlandi. Margt er á huldu varðandi ævi hans, meðal annars hvernig hann hlaut viðurnefni sitt en sumir telja það hafa verið vegna líkamlegrar fötlunar. Dauði hans var samkvæmt annálum árið 873.

Næsta verkefni Dickinson er að skanna hauginn og svæðið í kring og mun sú vinna hefjast strax í sumar. Hann segir að stór fornleifauppgröftur sé ekki á dagskrá á næstunni. Kostnaðurinn við það yrði gríðarlegur sem og erfitt að fá leyfi fyrir því.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn