

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hagkaup í Smáralind um síðustu helgi þegar Takkleikar vildarkerfisins Takk fóru fram.
Verslunin fylltist á skömmum tíma af fólki á öllum aldri sem tók þátt í leit að földum Takk krónum víðs vegar um verslunina. Alls voru 200 Takk krónur faldar í versluninni og flykktist fólk um ganga hennar í leit að „fjársjóðnum“. Þar að auki voru fimm stærri krónur faldar sem hver um sig gáfu 10.000 Takk krónur, þannig að heppnir þátttakendur gátu unnið samtals allt að 50.000 Takk krónur.

„Þetta er í annað sinn sem við höldum Takkleika og í bæði skiptin hefur verslunin fyllst af fólki. Stemningin var sérstaklega góð meðal fjölskyldna og yngstu viðskiptavinirnir voru sérstaklega duglegir að leita,“ segir Lilja Kristín, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum í tilkynningu.
Lilja Kristín segir Takkleika vera skemmtilega leið til að færa vildarkerfið nær fólki og skapa jákvæða upplifun í verslun. Stefnt er að því að halda fleiri Takkleika í framtíðinni.
