fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Ísland ætlar að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. mars 2026 08:36

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Hollandi, afhenti yfirlýsinguna fyrir hönd íslenskra stjórnvalda í dómstólnum í Haag. Mynd/Stjórnarráðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Yfirlýsing þess efnis var lögð fram fyrir dómstólnum í gær þar sem gerð er grein fyrir lögfræðilegri afstöðu Íslands. Með þessari ákvörðun tekur Ísland í fyrsta skipti þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu á vef Stjórnarráðsins.

Í málinu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza, sem hófst í kjölfar árása hryðjuverkasamtakanna Hamas í Ísrael 7. október 2023.

„Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gaza. Um leið hefur verið lögð áhersla á að það sé alþjóðlegra dómstóla að skera úr um hvort um hópmorð, einnig kallað þjóðarmorð, sé að ræða. Í samræmi við reglur dómstólsins afmarkast umfjöllun Íslands við það hvernig stjórnvöld telja rétt að túlka hópmorðssáttmálann,“ segir í tilkynningunni.

„Það gildir einu hvar átök geisa í heiminum eða hver er að verki, alþjóðasamfélaginu ber skylda til að leiða brot á alþjóðalögum til lykta fyrir sjálfstæðum og óháðum dómstólum. Með þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum beitum við rödd okkar í þágu alþjóðalaga og mannréttinda. Og af því megum við vera stolt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Í tilkynningunni kemur fram að með ákvörðun um meðalgöngu Íslands í málinu sé framfylgt stefnu sem Alþingi markaði í þingsályktun nr. 1/154, frá 9. nóvember 2023, um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs, þar sem þess er krafist að alþjóðalögum sé fylgt í einu og öllu, og áréttað að öll brot stríðandi aðila á alþjóðalögum verði rannsökuð til hlítar.

Sem fyrr segir er þetta í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í efnislegu máli fyrir Alþjóðadómstólnum en á sl. ári lagði Ísland í fyrsta sinn fram sjálfstæða greinargerð í ráðgefandi álitsmáli fyrir dómstólnum. Þetta er hluti af vaxandi áherslu á að Ísland beiti sér með virkum hætti fyrir virðingu fyrir reglum þjóðaréttar.

Vegna þátttöku í dómsmálinu efndi utanríkisráðuneytið til samstarfs við dr. Þórdísi Ingadóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og dr. Kára Hólmar Ragnarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, en þau eru meðal fremstu fræðimanna Íslands á sviði þjóðaréttar.

Hópmorðssáttmáli Sameinuðu þjóðanna er frá árinu 1948 og fjallar hann um skyldur ríkja til að fyrirbyggja hópmorð í heiminum. Er ríkjum sem aðild eiga að sáttmálanum skylt að grípa til ráðstafana gegn hópmorði sem og refsa fyrir það og tengda glæpi, t.d. hvatningu til hópmorðs. Ísland var fjórða ríkið til að fullgilda hópmorðssáttmálann árið 1949, en alls hafa 154 ríki gerst aðilar að honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Í gær

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað
Fréttir
Í gær

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum