fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. mars 2026 08:01

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það fyrirslátt að ágreiningur sé innan flokksins um borgarlínuverkefnið.

Kjörnir borgarfulltrúar fokksins, þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, sögðu skilið við flokkinn á dögunum og gengu í Miðflokkinn en þau munu þó sitja út kjörtímabilið.

Þar sem Miðflokkurinn fékk engan borgarfulltrúa kjörinn verði þau að stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja fyrir út þetta kjörtímabil. Hafa þau Kjartan og Marta sagt að andstaða þeirra við borgarlínu hafi verið ástæða þess að þeim var skipt út og fengu ekki sæti á lista flokksins fyrir komandi kosningar.

Morgunblaðið ræðir við Hildi um þetta í dag og segir hún að veruleikinn sé sá að mikil eftirspurn hafi verið eftir sæti á framboðslista flokksins fyrir kosningarnar. Færri komust að en vildu. Það er raunveruleikinn og það sem þetta mál snýst um,“ segir hún.

„Fólk bregst við því með misjöfnum hætti þegar það fær ekki sæti á framboðslistanum. Langflestir ætla með okkur í baráttuna, enda gríðarlega miklir hagsmunir undir fyrir borgarbúa að breytingar verði í vor. Flestir sjá stóru myndina en einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt,“ segir Hildur við blaðið.

Hún segir að það rangt að ágreiningur sé innan flokksins um borgarlínuverkefnið.

„Málið snýst ekki um málefnaágreining. Borgarlínuverkefninu hefur verið siglt í strand og það þarf að endurskoða frá grunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Í gær

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað
Fréttir
Í gær

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum