

„Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvers vegna Ísland sé ekki með samræmdan bílastæðapassa fyrir alla eða flesta ferðamannastaði?“ spyr ferðamaður á samfélagsmiðlinum Reddit.
Spyr hann hvort þetta myndi ekki gera lífið auðveldara fyrir ferðamenn og aðra gesti. Í dag þurfi þeir að rífa upp veskið í hvert skipti sem þeir koma að áhugaverðum stað. Langflestir ferðamannastaðir rukki fyrir bílastæðin.
„Þetta gæti verið 3, 5, 7 eða 10 daga passi og ferðamenn gætu valið að kaupa passa eða skrá bílaleigubílinn þannig að þeir geti lagt áhyggjulausir eða greitt við hvern stað, hvort sem þeir velja,“ segir hann. „Ég myndi miklu frekar vilja borga einu sinni og síðan ekki þurfa hugsa um þetta meir. Í stað þess að þurfa að greiða við hvern foss, að þurfa að athuga verðið í hvert sinn og eyða 5 til 10 mínútum að reyna að borga í einhverju appi.“
Hafa margir brugðist við og sumir lýst yfir efasemdum um að þessi leið sé gerleg. Bæði vegna þess að margir staðirnir eru í einkaeigu og vegna þess að þeir græða mikið á núverandi fyrirkomulagi.
„Þó að þessi hugmynd hljómi vel þá eru þeir að græða þúsundir dollara á hverjum einasta degi ársins á því að rukka rútur og bílaleigubíla,“ segir einn netverji í athugasemdum.