

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA hefur á undanförnum árum haldið viðburði í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars á hvert. Daginn bar upp á sunnudagi í ár og því fögnuðu konur Alþjóðlegum baráttudegi saman föstudaginn 6. mars síðastliðinn.
Alþjóðanefnd FKA skipulagði viðburðinn í samstarfi við New Icelanders á VOX Club Hilton Reykjavík Nordica.



Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar veitir menntunarstyrki til tekjulágra kvenna, oft einstæðra mæðra, hvaðanæva af landinu. Sjóðurinn veitir konum námsstyrki til fagnáms, starfsréttindanáms, framhaldsskólanáms og háskólanáms og undanfarin ár hefur sjóðurinn veitt 700 styrki.
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, ritari Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar var með kynningu á mögnuðum sjóði og Marly Gomes, formaður FKA New Icelanders deildi einlægri frásögn sem styrkþegi og ræddi mikilvægi menntunar og samstöðu kvenna.
„Áhrifamáttur Menntunarsjóðsins sést best þegar styrkþegar bæta líf sitt með aðstoð Menntunarsjóðsins sem fjölmörg dæmi erum um eins og sjá má,“ sagði Þórunn og leit stolt í áttina til Marly sem nú er að ljúka námi til löggildingar fasteigna- og skipasala með aðstoð sjóðsins. Marly hlaut styrk frá menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur til að stunda námið og má lesa nánar „Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum“.


