fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 18:30

Rétt fyrir upphaf réttarhaldanna í Teslubrunamálinu í október. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sænskur maður, fæddur árið 2000, stefndi íslenska ríkinu og krafðist þess að felldir yrðu úr gildi úrskurðir Útlendingastofnunar þess efnis að honum yrði vísað úr landi og hann settur í tíu ára endurkomubann til landsins.

Þessar ákvarðanir voru grundvallaðr á 95. grein laga um útlendinga en samkvæmt henni er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara úr landi ef  það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigði.

Í úrskurðunum var vísað til þess að maðurinn var grunaður um að taka þátt í skipulagðri brotastarfsemi og vera meðlimur í sænskum glæpasamtökum. Einnig hefur hann verið grunaður um fjölmörg alvarleg afbrot á Íslandi og í Svíþjóð. Hann er meðal annars ákærður fyrir að taka þátt í íveikju á bíl lögreglukonu við Rekagranda árið 2023. DV hefur fjallað mikið um það mál:

Teslu-brunamálið:Réttarhöldum lokað eftir að þau hófust – Sakborningur og brotaþoli fengu neyðarhnapp að ákvörðun lögreglu

Í stefnu sinni sagðist maðurinn vera saklaus af öllum kærum og ákærum en hafa þolað tilhæfulausar lögreglurannsóknir. Fram kemur í dómnum að maðurinn hefur hluta af dvöl sinni á Íslandi lifað á bótum frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar en hluta af tímanum verið í vinnu.

Það var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að sýkna íslenska ríkið af kröfum mannsins og brottvísun hans úr landi og tíu ára endurkomubann eru því áfram í gildi.

Dóminn má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Í gær

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna