fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Fataskápurinn og framtíðin

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 12:49

Ragna S. Bjarnadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný viðburðaröð um fatnað, textíl, ábyrgari neyslu og hringrásarhagkerfið hefst á Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. mars. Viðburðirnir eru haldnir í samstarfi við Listaháskóla Íslands og verða í umsjón Rögnu S. Bjarnadóttur, lektors og fagstjóra við fatahönnunarbraut LHÍ.

Um er að ræða þrjú miðvikudagskvöld í röð, sem byrjar kl. 19:30-21:00 í kvöld, en þá mun Ragna flytja erindi og leiða spjall um textíl, fatnað, fataskápinn og hringrásarhagkerfið í tengslum við fatakaup og ábyrgari neyslu. Yfirskrift erindisins er Fataskápurinn og hringrásarhagkerfið.

Fataviðgerðir fyrr og nú verða síðan til sérstakrar umræðu miðvikudagskvöldið 18. mars. Þá flytur Ragna erindið Fötin sem við gerum við, eru fötin sem skipta máli, en í því verður sjónum beint að skapandi viðgerðum, ósýnilegum viðgerðum og tilfinningunum og virðinu sem liggur í sumum flíkunum okkar.

Skapandi fataviðgerðir er yfirskrift smiðju sem Ragna og Katrín Káradóttir, sem einnig kennir við fatahönnunarbraut LHÍ, leiða miðvikudagskvöldið 25. mars. Þar geta þátttakendur prófað sig áfram í fataviðgerðum og kynnt sér aðferðir til að lengja líftíma fatnaðar. Á staðnum verða sýnidæmi, fræðsluefni, verkfæri, saumavélar, garn og textílefni. Þátttakendur eru þó hvattir til að taka með sér flíkur sem þarfnast lagfæringa, fjölbreyttan efnivið og eigin verkfæri.

Make-a-thek

Viðburðaröðin fer fram undir merkjum „make-a-thek“, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í til næstu þriggja ára. Markmið verkefnisins er að búa til vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (e. prosumers) meðal annars til að læra nýjar aðferðir í handavinnu, glæða gamlar flíkur nýju lífi og deila þekkingu. Make-a-thek er styrkt af Evrópusambandinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
Fréttir
Í gær

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur
Fréttir
Í gær

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður
Fréttir
Í gær

Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir

Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir