fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Brynjar gagnrýnir ESB-rök Berglindar: „Dömubindið breytist ekki í gylltan borða“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2026 13:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, lögmaður, fyrrverandi þingmaður og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir að innganga í Evrópusambandið muni engu breyta um greiðslubyrði hjúkrunarfræðinga eða annarra.

Brynjar skrifar pistil á Facebook þar sem hann gerir aðsenda grein Berglindar Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðings, sem birtist á Vísi, að umtalsefni. DV gerði pistlinum skil í morgun.

Sjá einnig: Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman

Dömubindi og „bjútíbox“

Í pistlinum sagðist Berglind vilja „kíkja í pakkann“ og halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Nefndi hún máli sínu til stuðnings að lán sem hún er með, námslán annars vegar og húsnæðislán hins vegar, hefðu hækkað mikið þrátt fyrir að hún hafi borgað samviskusamlega af þeim í hverjum mánuði árum saman.

Benti Berglind á að fjögurra milljóna námslán sem hún tók 2008 standi nú í átta milljónum og 53 milljóna húsnæðislán árið 2022 standi nú í 61 milljón.

Brynjar, sem skipar 3. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir kosningarnar í vor, gefur lítið fyrir rök Berglindar.

„Það er nú þannig að greiðsluþreytti hjúkrunarfræðingurinn veit jafn vel hvað er í „pakkanum“ og það sem er í bjútíboxinu hennar. Sama hvað hún opnar bjútiboxið oft þá mun dömubindið ekki breytast í gylltan borða. Hún þarf ekki annað en að kíkja á Rómarsamninginn og önnur gögn og samninga ESB og hlusta á talsmenn ESB í umræðunni til að vita hvað er í „pakkanum“. Svo er það þannig að þegar menn sækja um aðild þá hlýtur það að vera í þeim tilgangi að ganga inn i ESB en ekki kíkja í pakka. Annað er ókurteisi gagnvart ríkjum ESB.“

Innganga muni engu breyta

Brynjar segir svo að ef það er einhver huggun geti hann upplýst Berglindi um að verðbólga var í tugum prósenta þegar hann var að basla við íbúðarkaup og vextir hafi verið hærri en þeir eru í dag.

„Það sem greiðsluþreytti hjúkrunarfræðingurinn ætti að velta fyrir sér er hver sé kaupmáttur og húsnæðiskostnaður hennar á mánuði þegar allt er tiltekið í samanburði óþreyttu hjúkrunarfræðingana í ESB.”

Brynjar segir að endingu að innganga í ESB muni engu breyta um greiðslubyrði hjúkrunarfræðinga eða annarra.

„Allavega ekki meðan ríkisstjórnin hækkar álögur og bruðlar sem aldrei fyrr, vinnumarkaðurinn semur um hærri laun en útflutningsgreinar þola á hverjum tíma og Reykjavíkurborg fullnægir ekki lóðaframboði. Ef landsmenn vilja eyða milljörðum í tilgangslausa pakkaskoðun er það sársaukalaust af minni hálfu. En best væri að taka til heima hjá sér áður en farið er í slíka vegferð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn