fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þorbjörg Sigríður: Sjálfstæðisflokkurinn að elta Miðflokkinn – Ummæli varaformannsins með ólíkindum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 09:00

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Mynd: Stjórnarráð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég heyrði þessar vangaveltur varaformanns Sjálfstæðisflokksins og mér fannst þær með nokkrum ólíkindum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í dag.

Þar er hún meðal annars spurð út í ummæli Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem velti því upp á Alþingi í síðustu viku hvort tímabært væri að hefja endursendingar á Palestínumönnum til síns heima.

Sjá einnig: Ummæli Jens Garðars á Alþingi í gær vekja mikla úlfúð – „Fullkomlega ömurlegt“

Þorbjörg Sigríður segir að það sé fullkomlega ótímabært að ræða þetta, enda viti allir hvernig ástandið er á Gasa. „Ég held að enginn sem taki sig alvarlega í þessum málaflokki geti talað fyrir því að við séum að senda fólk aftur til Palestínu,“ segir hún við Morgunblaðið og bætir við að hún telji að með þessu sé Sjálfstæðisflokkurinn að elta Miðflokkinn.

„Flokkurinn er að gera upp einhverjar sorgir sínar úr fyrra ríkisstjórnarsamstarfi og það er bara eins og það er,“ segir Þorbjörg. Hún er þeirrar skoðunar að umræðan ætti frekar að snúast um hversu mörgum við höfum tekið á móti. Bendir hún á að við höfum tekið hlutfallega á móti fleiri Palestínumönnum en aðrar þjóðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”