fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Ætlar ekki að taka sæti á lista Viðreisnar – „Á þeim stað að standa núna á ganginum og horfa í kringum mig á þær dyr sem mögulega opnast“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. febrúar 2026 10:47

Birgir Örn Guðjónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu, mun ekki taka sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Birgir Örn bauð sig fram í fyrsta sæti, en lenti ekki í þremur efstu sætunum sem kosið var um, að öðru leyti verður raðað á listann.

Birgir Örn segir ýmsar ástæður liggja að baki ákvörðun hans.

„Meginástæðan er samt sú að ég gerði mér að sjálfsögðu vonir um að fá að fá að leiða listann en þar sem það varð alls ekki raunin þarf ég að velja mínar baráttur og nýta orkuna og tímann eins skynsamlega og ég get. Þessi ákvörðun er því alls ekki tekin út af því að ég sé eitthvað fúll eða sár. Ég er það alls ekki. Það hefur ekkert breyst varðandi minn vilja að nýta reynslu mína og hugsjón fyrir bættu samfélagi. Ég mun bara halda þeirri baráttu áfram á öðrum vígstöðvum. Hvort það verði tengt pólitík í framtíðinni þarf tíminn að leiða í ljós. Það er bara einn valkostur af mögum.“

Birgir Örn segir mikil verk að vinna í málefnum barna sem hann er lánsamur að geta tekið þátt hjá Barna og fjölskyldustofu. Segist hann alltaf með einhverjar hugmyndir í kollinum til að velja úr varðandi alls konar hluti og langt frá því að vanti eitthvað að gera. Vandamálið er að velja og hafna.

„Það er eins og dóttir mín sagði við mig þegar ég sagði henni að ég væri að spá í að fara í prófkjör. „Pabbi ertu klikkaður? Hvar ætlarðu eiginlega að finna tíma?“. Tek það fram að það var áður en sjúkrahúsdvölin og annað óvænt kom upp sem við fjölskyldan þurftum líka að fást við á meðan prófkjörsbaráttan fór fram. En þannig er bara lífið og maður vinnur með þau tækifæri og áskoranir sem það gefur manni.

En þar sem bæjarpólitíkur hurðin er nú lokuð, í bili allavega, er ég á þeim stað að standa núna á ganginum og horfa í kringum mig á þær dyr sem mögulega opnast. Ég er bara þannig gerður að ef ég sé einhver op þá mun ég örugglega tékka á því og sjá hvort ég geti gert eitthvað þar fyrir innan. Það er alltaf spennandi staður að vera á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“