fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Jón varpar fram hugmynd um þorp í borginni – „Gæti það ekki orðið svolítið skemmtileg viðbót“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 10:30

Jón Gnarr

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar segir skipulagsmál gríðarlega flókin og margt í þeim felast: „búseta og samgöngur þar sem saman fara notagildi, menningarlegar áherslur og fagurfræði en líka andleg líðan og lýðheilsa. Heilbrigt samfélag í sem víðustum skilningi. Skipulagsmál eru fagleg fræði sem þarf svo að lenda í pólitískri sátt.“ 

Segist Jón þekkja það ágætlega eftir að hafa komið að aðalskipulagi Reykjavíkur 2014 þegar hann var borgarstjóri. Hann segir að sér hafi ekki tekist að setja sig nægilega vel inn í  nokkur atriði varðandi skipulagsmál í borginni á sínum tíma. Og vera með grein í vinnslu sem birtast mun á Eyunni bráðlega, þar sem Jón er fastur pistlahöfundur.

Jón varpar fram hugmyndum um Viðey.

„Byggð í Viðey á sér langa og merka sögu sem hófst strax við landnám. Þar var reist mikið klaustur 1225. Klaustrinu fylgdi kirkja sem líklega var stafkirkja, lík þeim sem við þekkjum frá Noregi. Klaustrið og kirkjan stóðu allt fram til siðaskipta. Í eyjunni hefur, í gegnum söguna, verið búseta, búskapur og atvinnustarfsemi.

Á ferðalögum um Noreg og Svíþjóð þá hef ég hrifist af byggðum í eyjum sem liggja gjarnan undan ströndum borga og bæja. Byggðin byggir oft á menningarsögu eða jafnvel einhverri hugmyndafræði eins og vistbyggð eða álíka. Þar er yfirleitt takmörkuð bílaumferð en meiri áhersla lögð á fjölskylduvænt skipulag og nálægð við náttúru.“

Segir Jón að íslenska útgáfu af slíkri byggð þekkjum við helst frá Flatey á Breiðafirði og Hrísey.

„Ættum við að skoða möguleikana á því að byggja upp svona hverfi eða samfélag í eyjunni ? Þorp í borg, þar sem litlum og stórum og litríkum gamaldags timburhúsum, með stórum lóðum væri dritað nokkuð óskipulega niður. Gæti það ekki orðið svolítið skemmtileg viðbót við borgina? Það mætti jafnvel endurreisa klaustrið og kirkjuna?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip
Fréttir
Í gær

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði
Fréttir
Í gær

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss
Fréttir
Í gær

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir
Fréttir
Í gær

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Í gær

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga