fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kristrún Frosta um stöðu Grænlands: „Ég verð ekki sá forsætisráðherra“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 08:00

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég verð ekki sá forsætisráðherra sem opnar á að snúa bakinu við Grænlendingum vegna þess að við erum hrædd við Bandaríkin,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í viðtali í Morgunblaðinu í dag.

Þar ræðir Kristrún meðal annars um stöðu Grænlands og viðrar þá skoðun sína að tímabært sé að hefja aftur Evrópuumræðuna með það fyrir augum að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Í viðtalinu segist Kristrún ekki hafa áhyggjur af því að við séum að stefna sambandi okkar við Bandaríkin í hættu með því að tala afdráttarlaust í málefnum Grænlands.

„Við sem fullvalda þjóð getum ekki látið okkar arfleifð í þessu máli vera þá, að okkar næstu nágrannar, með sjálfsákvörðunarrétt í mjög mörgum málum og gott samkomulag við Dani um sína framtíð, að við samþykkjum eða styðjum áform um innlimum Grænlands,“ segir Kristrún meðal annars í viðtalinu og bætir við:

„Þrátt fyrir að við eigum náið og sterkt samband við Bandaríkin, þá þurfum við að vera algerlega skýr um þetta. Heimsmyndin má ekki bara ráðast af hervaldi eða stærð. Það á ekki aðeins við um Ísland, það á við um svo mörg lönd, og það gjörsamlega breytir allri alþjóðaskipan ef það fer að verða nýja lögmálið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”