fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti í Íran og Trump hótar mjög hörðum aðgerðum

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 09:00

Donald Trump og Erfan Soltani.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið „mjög hörðum aðgerðum“ ef yfirvöld í Íran hefja aftökur á mótmælendum sem handteknir hafa verið undanfarna daga.

„Ef þeir byrja að hengja fólk þá munið þið sjá ýmislegt gerast,“ sagði Trump í gærkvöldi. Ummælin féllu í kjölfar frétta af yfirvofandi aftöku á hinum 26 ára Erfan Soltani sem handtekinn var í síðustu viku. Hann hefur verið dæmdur til dauða og segja aðstandendur hans að til standi að taka hann af lífi í dag.

Trump var staddur í verksmiðju Ford í Detroit í gær þegar hann ræddi við blaðamenn. Hann sagðist ekki hafa heyrt um yfirvofandi aftökur en sagði að gripið yrði til harðra aðgerða ef til þeirra kemur.

BBC ræddi í morgun við Awyer Shekhi, fulltrúa mannréttindasamtakanna Hengaw, en hann segist óttast að fleiri en Soltani hafi verið dæmdir til dauða. Þar sem aðgangur að Internetinu er takmarkaður í landinu hefur það reynst mannréttindasamtökum erfitt að nálgast upplýsingar.

Systir Soltani, sem er lögfræðingur, segir að yfirvöld hafi gefið fjölskyldunni þau skilaboð að þau fái að hitta hann í stutta stund áður en hann verður tekinn af lífi. Fjölskyldan hafi þó ekkert heyrt frá honum síðan hann var handtekinn. „Hann er bara einhver sem er á móti því ástandi sem ríkir í landinu. Og núna hefur hann fengið dauðadóm fyrir að láta þá skoðun í ljós,“ segir hún.

Donald Trump hefur hvatt mótmælendur í Íran til að halda uppteknum hætti og hann hefur sagt að aðstoð sé á leiðinni frá Bandaríkjunum. „Það er mikil hjálp á leiðinni, í ýmsum myndum,” sagði Trump í gær.

Mannréttindasamtök í landinu segja að yfir 2.500 manns hafi verið drepnir í mótmælunum, en í þeim hópi eru 147 laganna verðir og um 2.400 mótmælendur. Tólf þeirra sem hafa látist eru undir átján ára, að því er segir í frétt BBC.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”