fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Sigurður er gagnrýninn á borgarstjórn og segir harðan vetur framundan: „Almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. júní 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum ekki að horfa fram á venjuleg pólitísk skipti, heldur kerfisbundna tilfærslu á fjármunum úr sameiginlegum sjóðum borgarinnar og beint í vasa innmúraðra vildarvina flokksins. Reikningurinn verður sendur þeim sem minnst mega sín. Foreldrar, ungar fjölskyldur, námsmenn, aldraðir og öryrkjar munu borga með skertum lífsgæðum, hærri þjónustugjöldum og hruni á grunnþjónustu á meðan verktakar og einkafyrirtæki telja hagnaðinn,“ 

segir Sigurður Sigurðsson byggingaverkfræðingur í grein sinni á Vísi um nýja borgarstjórn.

Segir Sigurður að þung og lamandi óvissa ríki í Reykjavík og við blasi nýr pólitískur veruleiki þar sem Sjálfstæðisflokkurinn, „undir forystu sem virðist hafa fullkomlega aftengst millistéttinni og hinum vinnandi manni, hefur fengið óskorað umboð til að móta framtíð höfuðborgarinnar.“ Segir Sigurður að þar sem sú hugmyndafræði, þar sem almannahagsmunir lúta alltaf í lægra haldi fyrir sérhagsmunum, fær að stjórna stærsta þjónustukerfi landsins, opnast flóðgáttir sem borgarbúar munu seint geta lokað.

Pólitískur útboðssirkus sem gengur yfir sumarið

Sigurður er stóryrður og segir að þessi „pólitíski útboðssirkus og sýndarmennska á borð við verkefnalisti.is gæti gengið smurt á glanspappírnum yfir sumarmánuðina.“ Þegar vetur komi sé engin miskunn og blekkingarnar verði tættar sundur.

„Hvernig ætla borgarbúar að halda jólin þegar skammdegið, skafrenningurinn og snjórinn bresta á af fullum þunga? Hvert fer „litla stúlkan með eldspýturnar“? Í Ráðhús Reykjavíkur.“

Harður vetur framundan með hækkandi álögum

Sigurður segir nýja meirihlutann fljótlega munu átta sig á því að hann getur ekki lækkað skatta, greitt niður skuldir og fjármagnað fimmtán punkta óskalista í einu. Telur hann að málum verði þá forgangsraðað eftir pólitísku vægi: kjarnafylgjunni og fjármagnseigendum verður tryggður sinn skerfur með skattaafsláttum á atvinnuhúsnæði, en almenningur mun mæta stórhækkuðum þjónustugjöldum.

„Við þurfum að búa okkur undir harðan vetur þar sem gjöld á leikskóla, frístundaheimili og almenningssamgöngur munu rjúka upp, á sama tíma og gæði þjónustunnar munu líklega hrynja. Þetta mun bitna af fullum þunga á þeim hópum sem síst skyldi:

1)Ungar fjölskyldur: Þær sem eiga ekki „réttu tengingarnar“ eða starfa hjá fyrirtækjum sem geta boðið upp á einkarekna daggæslu munu sitja eftir á löngum biðlistum, á meðan gjöldin fyrir þau fáu pláss sem standa til boða hækka.

2)Námsmenn og leigjendur: Þegar Samgöngusáttmálanum er frestað og innviðum almenningssamgangna fórnað, er þetta fólk dæmt til að sitja fast í umferðaröngþveiti eða borga fúlgur fjár fyrir einkabílinn. Hagkvæmu húsnæði er frestað til að rýma fyrir lúxusvillum á Geldingarnesi.

3)Aldraðir og öryrkjar: Stuðningskerfi og liðveisla munu lamast vegna skorts á stjórnun og fjármagni. Sextíu þúsund króna „frístundastyrkur“ til fátækra hljómar eins og móðgun þegar verið er að herða aðgengi að félagslegri aðstoð og fresta viðhaldi á innviðum.“

Vinnan færist til þeirra á gólfinu sem þegar standa undir ofurálagi

Sigurður vísar í að meirihlutinn í borgarstjórn hafi meðal annars lofað að fækka millistjórnendum hjá borginni, svo hægt væri að lækka skatta og auka skilvirkni á verkefnalisti.is. Segir hann að í flóknu samfélagi eins og Reykjavík, þar sem hlutfall þeirra sem þurfa á mikilli og sérhæfðri þjónustu að halda er hæst á landinu, sé þessi orðræða stórhættuleg blekking.

„Hverjir eru þessir „millistjórnendur“ sem á að fórna á altari nýfrjálshyggjunnar? Þetta eru ekki nafnlausir skrifstofubúkar í jakkafötum. Þetta eru deildarstjórar á leikskólum sem skipuleggja faglegt starf fyrir börnin okkar. Þetta eru verkefnastjórar í velferðarþjónustu sem halda utan um flókin úrræði fyrir fatlað fólk, geðsjúka og heimilislausa. Þetta eru yfirmenn frístundaheimila og félagsmiðstöðva sem tryggja öruggt umhverfi fyrir ungmenni,“ segir Sigurður sem segir vinnuna ekki hverfa þegar störfunum sé eytt:

„Hún færist einfaldlega niður á þá sem þegar standa undir ofurálagi á gólfinu. Leikskólakennarar og félagsráðgjafar neyðast til að eyða dýrmætum tíma sínum í Excel-skjöl, vaktaplanagerð og bókhald í stað þess að sinna skjólstæðingum sínum. Afleiðingin er tafarlaus fagleg lömun. Boðleiðir lengjast og kerfið hættir einfaldlega að svara. Fyrir vikið verður þjónusta við almenning í skötulíki. Þetta er ósýnilegasti en jafnframt lúmskasti niðurskurðurinn: að eyðileggja stjórnskipulagið svo enginn sé lengur til staðar til að bera ábyrgð eða taka ákvarðanir þegar neyðin steðjar að.“

Sigurður segir viðhaldskuldirnar á skólahúsnæði ekki hverfa við brottrekstur millistjórnenda.

„Þegar haustrigningarnar og frostið herða að, munu fleiri skólastofur lokast vegna leka og myglu. Börnin okkar verða flutt í gáma á meðan foreldrar reyna að fá svör frá kerfi sem svarar ekki. Þegar fyrsti alvöru snjóstormurinn skellur á og búið er að skera niður í framlínunni eða útvista snjómokstrinum til vanbúinna verktaka, mun umferðin hreinlega frjósa föst. Höfuðborgin mun breytast í eitt risastórt, kyrrstætt bíla- og vandamálasafn í myrkrinu.“

Skipulögð rányrkja á almannafé

Sigurður segir hugmyndir meirihlutans um að bjóða út sorphirðu í einstökum hverfum eða semja við vinnustaði um rekstur leikskóla aðeins fyrstu skrefin í átt að skipulagðri rányrkju á almannafé.

„Á sama tíma og grunnkerfin eru fjársvelt og stjórnunarlega höfuðlaus, eru flóðgáttir einkavæðingarinnar opnaðar upp á gátt. Í nafni „útboða“ og „hagræðingar“ á að færa verkefni sem borgin hefur rekið á kostnaðarverði yfir til einkafyrirtækja.“

Segir Sigurður að hugsa þurfi málið til enda og spyrja hvernig einkafyrirtæki hagnast á því að skúra skóla eða tæma ruslatunnur:  „Þau gera það með því að pressa laun skúringakvenna og verkamanna niður í lágmark, skerða réttindi þeirra og draga úr gæðum þjónustunnar. Fastráðnu starfsfólki borgarinnar, sem búið hefur við lágmarksöryggi, verður smám saman ýtt út, og inn koma stórþrifafyrirtæki í eigu „réttra aðila“ sem hirða mismuninn sem hreinan gróða.“

Hann segir það jafnframt ekki lausn á húsnæðisvanda ungs fólks eða tekjulágra „að henda tilbúnum, hagkvæmum áætlunum um uppbyggingu í Keldnalandi út af borðinu og kasta þess í stað fram sex nýjum framtíðarsvæðum eins og Geldinganesi og Kjalarnesi,“ því með því er verið að búa til gullnámu fyrir innmúraðar verkfræðistofur og skipulagsverktaka. „Þetta eru gífurlegir fjármunir sem munu renna í teikningar, jarðvinnu og rannsóknir á svæðum þar sem enginn mun búa næsta áratuginn.“

Sigurður segir jólin verða gleðilega fyrir þá fáu útvöldu og innmúruðu og þeirra fyrirtæki munu blómstra á nýjum samningum við borgina.

„En fyrir hinn almenna borgara verður veturinn áminning um þá lýðræðislegu hættu sem fylgir því þegar stærsti hægri flokkurinn hættir að vera ábyrgur þjóðmálaflokkur og breytist í tæki fyrir sérhagsmuni. Það pólitíska landslag sem nú er að teiknast upp mun breytast hraðar til hins verra en margir gera sér grein fyrir.

Ef borgarbúar rísa ekki upp og krefjast þess að almannahagsmunir séu settir ofar gróðahagsmunum fárra, mun Reykjavík breytast úr því að vera samfélag fyrir alla, í einkarekna vinaparadís innmúraðra, þar sem almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Degi úthýst af Mogganum

Degi úthýst af Mogganum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“