fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Guðni hefur ekki áhyggjur af svalli og brennivínsbrjálæði æsku sinnar: „Það er ekki heil brú í þeim varnaðarorðum“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. júní 2026 11:15

Hjörleifur Guttormsson, Guðni Ágústsson og Jökull í Kaleo. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, segir ekki heila brú í varnaðarorðum um að fyrirhugaðir tónleikar Kaleo á Þingvöllum muni rjúfa helgi staðarins. Í grein sem Guðni skrifar í Morgunblaðið í dag segist hann hafa orðið glaður við fregnir af tónleikunum:

„Það gladdi mig þegar ég sá að nú skyldi hefja nýjan sið og bjóða frægri íslenskri hljómsveit að halda tónleika á Þingvöllum um Jónsmessuna, „í nóttlausri voraldar veröld þar sem víðsýnið skín“ eins og þjóðskáldið kvað svo snilldarlega hér um árið. Ég varð snortinn af uppátækinu,” skrifar Guðni.

Líkt og DV hefur fjallað um eru ekki allir á par sáttir við tónleikana. Ráðherrann fyrrverandi Hjörleifur Guttormsson er meðal þeirra en hann sagði Þingvelli vera „friðlýstan helgistað íslensku þjóðarinnar“.

Sjá frétt: Afar ósáttur við stórtónleika á Þingvöllum: „Stjórnvöld gerðu rétt með að aflýsa þessu óráði“

Guðni bendir á að í dag séu meira en níu af hverjum tíu gestum Þingvalla erlendir ferðamenn:

„Íslendingar mæta þangað í mesta lagi einu sinni til þess að sjá dýrðina en eiga svo ekkert erindi aftur. Ekkert er í gangi. Því þarf að breyta,“ segir Guðni. „Það er frábært að efna til vel skipulagðrar hátíðar sem dregur að 20.000 manns og skilar Þingvallanefnd 40 milljónum í tekjur sem öllum verður ráðstafað til þess að bjóða börnum alls staðar að af landinu að koma og upplifa þennan ægifagra og magnaða helgidóm Íslandssögunnar.“

Ekki heil brú í varnaðarorðum

Hann segir að oft sé búið að skipuleggja samkomur á Þingvöllum:

„Það er ekki heil brú í þeim varnaðarorðum að verið sé að rjúfa helgi Þingvalla með samkomuhaldi. Það höfum við oft gert áður af smáum og stórum ástæðum og þær smærri eru oftsinnis á ári.“

Hvað varði aðgangseyri, en miðinn á Kaleotónleikana kostar sinn skilding, þá sé köfurum seldur aðgangur að Silfru nær daglega. Hann hefur engar áhyggjur af svalli og brennivínsbrjálæði æsku sinnar:

„Loks ætlar Þingvallanefnd að opna landsmönnum, og þá ekki síst yngra fólki, kærkomið erindi í þjóðgarðinn til þess að upplifa þennan einstaka stað með fjölbreyttri tónlist listamanna á heimsmælikvarða. Fjöldinn er takmarkaður við 20.000 manns, u.þ.b. fjölda gesta á tveimur dögum, sem auðvitað er vel viðráðanlegt. Ég er sannfærður um að gengið verður um staðinn af virðingu. Sú tíð æsku minnar er sem betur fer löngu liðin að slíkum samkomum fylgi svall og brennivínsbrjálæði gömlu útihátíðanna í Þjórsárdalnum, Húsafelli, Atlavík og víðar.“

Guðni er viss um að daginn eftir tónleikana standi fegurð Þingvalla óröskuð:

„En góðu fréttirnar eru að þá hafa tuttugu þúsund ungmenni upplifað fegurð Þingvalla í allri sinni dýrð. Ungt fólk sem jafnvel hefði aldrei komið þangað ella. Og í kjölfarið koma svo þúsundir barna á grunnskólaaldri í heimsókn líka. Fram undan er nýtt og tímabært líf á Þingvöllum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Degi úthýst af Mogganum

Degi úthýst af Mogganum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“