Fréttir

Rússar sagðir standa að daglegum árásum í Evrópu – Svona fara þeir að

Mynd
Anne Keast-Butler í ræðu sinni. Mynd/Getty

Anne Keast-Butler, forstjóri GCHQ sem er ein af leyniþjónustustofnunum Bretlands, segir Rússland hafa lagt aukinn kraft í netárásir, skemmdarverk og aðrar leynilegar aðgerðir gegn Bretlandi og Evrópu að undanförnu.

New York Times greinir frá þessu og segir að þetta gerist á sama tíma og Rússar eiga undir högg að sækja í Úkraínu.

Í ræðu sem Keast-Butler hélt í vikunni sagði hún að yfirvöld í Kreml hefðu staðið á bak við gáleysislegar tilraunir til skemmdarverka og morða víða um Evrópu. Hún sagði rússnesk stjórnvöld í auknum mæli beina sjónum sínum að mikilvægum innviðum, samgöngum og vöruflutningum í Evrópu.

Gerist daglega

„Rússar standa daglega fyrir auknum netárásum, skemmdarverkum og öðrum leyniaðgerðum gegn Bretlandi og Evrópu,“ sagði hún.

Aðgerðirnar sem Keast-Butler vísar til, svokallaðar hybrid-aðgerðir, fela meðal annars í sér netárásir, skemmdarverk, áróðursherferðir og leynilegar aðgerðir sem hafa það að markmiði að veikja stofnanir og skapa óstöðugleika í vestrænum ríkjum.

Keast-Butler sagði að GCHQ ynni nú markvisst að því að stöðva slíkar aðgerðir.

Hún sagði einnig að nýjustu leyniupplýsingar bentu til þess að nærri hálf milljón rússneskra hermanna hefði fallið í stríðinu í Úkraínu frá upphafi innrásarinnar árið 2022. Hún útskýrði þó ekki hvernig sú tala hefði verið reiknuð.

Árásir og skemmdarverk

Rússland hefur sætt gagnrýni og ásökunum um fjölmargar leynilegar aðgerðir í Evrópu undanfarin misseri. Evrópsk stjórnvöld hafa meðal annars kennt Rússum um árásir og skemmdarverk á járnbrautakerfi í Póllandi, truflanir á leiðsögukerfum flugvéla yfir Svíþjóð og netárásir á mikilvæga innviði í Noregi.

Yfirvöld í Litáen greindu nýlega frá handtöku níu einstaklinga sem sakaðir eru um að hafa skipulagt morð og skemmdarverk í Evrópu fyrir rússnesku herleyniþjónustuna GRU.

Evrópa stendur enn sterk

Keast-Butler sagði að þrátt fyrir tilraunir Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta til að sundra Vesturlöndum hefði samstaða Evrópuríkja styrkst á síðustu árum. Varnarmálaútgjöld hefðu aukist og samstarf ríkja innan NATO verið eflt.

„Á meðan við stöndum fast við stuðning okkar við Úkraínu er Pútín að tapa á vígvellinum,“ sagði hún.

Samhliða ræðu hennar tilkynntu Bretland og Pólland um nýjan varnarsamning sem ætlað er að styrkja sameiginlegt öryggi ríkjanna gagnvart auknum ógnum í Evrópu.

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði samninginn stærsta framfaraskrefið í varnarsamstarfi ríkjanna í áratugi.

Leyniþjónustuyfirvöld víða um Evrópu hafa á síðustu misserum lýst yfir vaxandi áhyggjum af útþenslustefnu Rússlands og telja margir að stríðið í Úkraínu marki ekki endapunkt metnaðar Pútíns í Evrópu.