Veðurstofan hefur gefið út fjölda veðurviðvarana vegna óveðurs sem gengur yfir landið í dag og á morgun. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á Norðurlandi síðdegis og síðar á Austfjörðum og Suðausturlandi. Á síðarnefnda svæðinu er varað við vindhviðum sem geta náð allt að 50 metrum á sekúndu.
Talsverð snjókoma verður norðanlands í dag og víða allhvass eða hvass norðvestan- og vestanvindur. Búast má við að færð spillist verulega þegar líður á daginn.
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands gengur í norðan stórhríð á Norðurlandi í kvöld og síðar austanlands í nótt. Á sama tíma verður úrkomulítið sunnanlands, þótt þar geti einnig orðið mjög hvasst.
Ferðalög ekki ráðlögð á Norðurlandi
Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 15 í dag og gildir til klukkan 23:30. Þar er spáð norðan- og norðvestanátt, 18–25 metrum á sekúndu, ásamt talsverðri snjókomu og skafrenningi.
Sérstaklega er varað við slæmu veðri á fjallvegum og á Tröllaskaga. Skyggni getur orðið afar lítið og færð erfið. Veðurstofan ráðleggur fólki að vera ekki á ferðinni.
Sambærileg appelsínugul viðvörun tekur gildi á Norðurlandi eystra klukkan 17 og stendur til klukkan tvö í nótt.
Gular viðvaranir hafa einnig verið gefnar út fyrir Vestfirði, Breiðafjörð og Faxaflóa vegna hríðarveðurs og erfiðrar færðar.
Hviður allt að 50 metrum á sekúndu
Óveðrið færist austur yfir landið í nótt. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum upp úr miðnætti og gildir til klukkan 10 í fyrramálið. Þar er spáð norðan- og norðvestanstórhríð með vindhraða á bilinu 18–25 metrar á sekúndu.
Á Suðausturlandi er hins vegar hætta á sérstaklega öflugum vindhviðum. Þar tekur appelsínugul viðvörun gildi klukkan fimm í fyrramálið og stendur til klukkan 11.
Spáð er norðvestanstormi eða roki með vindhraða á bilinu 18–25 metrar á sekúndu. Vindhviður geta hins vegar náð 45–50 metrum á sekúndu, einkum austan Öræfa.
Veðurstofan varar við því að staðbundið tjón geti orðið á mannvirkjum og hvetur fólk til að halda sig innandyra. Jafnframt er ráðið frá ferðalögum á svæðinu meðan óveðrið gengur yfir.
Kólnar aftur á morgun
Á miðhálendinu verður einnig vonskuveður frá því í kvöld og fram á laugardagsmorgun. Þar er spáð 15–25 metrum á sekúndu, talsverðri snjókomu og skafrenningi. Veðurstofan segir að skyggni verði lítið og vegir ófærir. Ekkert ferðaveður verði á hálendinu.
Framan af laugardegi verður áfram vonskuveður austanlands en smám saman dregur úr vindi og ofankomu. Vestanlands verður veðrið mun skárra.
Víða verður frost í dag en heldur mildara í kvöld. Á morgun kólnar hins vegar aftur og þá verður frost um allt land.