fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

50 handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi –  samstarf íslensku lögreglunnar við Europol

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 50 manns voru handteknir í samræmdri lögregluaðgerð evrópskra yfirvalda  gegn skipulagðri brotastarfsemi á svæðinu kringum Eystrasalt í síðustu viku. Verðmæti upp á rétt um 70 milljónir króna voru haldlögð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Segir þar að fulltrúi Íslands í aðgerðinni komi frá lögreglunni á Austurlandi. Ennfremur segir í tilkynningunni:

„Alls voru yfir 33 þúsund einstaklingar og 22 þúsund ökutæki stöðvuð og skoðuð. Aðgerðin, EMPACT Trident,  beindist meðal annars að eftirliti með flutningi ólöglegra efna yfir landamæri, flutningi fjármuna og annarra verðmæta auk hættulegs úrgangs. Hald var lagt á mikið magn fíkniefna og stolinna muna auk þess sem mál komu upp er vörðuðu peningaþvætti.

Aðgerðin var undir stjórn Svíþjóðar en Danmörk, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Þýskaland, Noregur og Ísland tóku þátt auk Europol og fjölda stofnana. Fulltrúi Íslands í aðgerðinni kemur frá lögreglunni á Austurlandi sem sinnir m.a. eftirliti við komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar

Þykir niðurstaðan sýna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi og að með sameiginlegu átaki, ekki síst með auknu landamæraeftirliti, megi draga úr möguleikum brotamanna á að hagnast og njóta ágóða af brotastarfsemi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“