

Ný rannsókn sýnir að laxinn í Atlantshafi bregst við kókaínmengun í vatninu. Meðal annars syndir hann lengra en venjulega.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Rannsóknin er sú fyrsta sem sýnir fram á áhrif kókaínmenungar í vatni á villta fiska en hún var unnin af vísindamönnum við Griffith háskóla í Ástralíu. En hingað til hafa slíkar rannsóknir aðeins verið gerðar á rannsóknarstofum. Var unglaxi í Vättern vatni í Svíþjóð fylgt eftir í átta vikur.
Vegna notkunar mannsins á kókaíni er kókaínmengun sífellt að aukast í vatni. Það er að efnasamböndin renna út í vatnið með þvagi úr skólplögnum. Skólphreinsikerfi eru ekki hönnuð til þess að sigta þessi efni frá.
Kom í ljós að laxar sem höfðu verið útsettir fyrir kókaínmengun syntu tvisvar sinnum lengra en aðrir fiskar og dreifðu sér um 12,3 kílómetrum lengra inn í vatnið.
„Fiskar fara þangað sem er æti og forðast staði þar sem þeir eru étnir. Þannig er dreifingin þeirra,“ segir Marcus Michelangeli, einn af höfundum rannsóknarinnar. „Ef mengun breytir þessari hegðun þá gæti það haft áhrif á vistkerfin á máta sem við erum rétt byrjuð að skilja.“
Rannsóknin sýnir hins vegar ekki fram á neina hættu fyrir fólk af því að borða kókaínmengaðan lax. Unglaxinn sem var rannsakaður er langt undir þeirri stærð sem veiddur er.