fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 19. apríl 2026 10:30

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík verður sveitarstjóraefni framboðs L-lista Framfara í Þingeyjarsveit í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði en hún hafði áður tilkynnt að hún myndi ekki sækjast eftir endurkjöri í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningum frá bæði Þórdísi Lóu og L-listanum.

Í tilkynningu Þórdísar Lóu, sem verið hefur í borgarstjórn síðan 2018 og verið bæði formaður borgarráðs og forseti borgarstjórnar, kemur fram að L- listinn hafi leitað til hennar um að taka að sér starf sveitarstjóra í Þingeyjarsveit að loknum  sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi og hún hafi ákveðið að gefa kost á mér í það verkefni.

Þórdís Lóa tekur fram að hún hafi töluverð tengsl við sveitina:

„Þingeyjarsveit er mér afar kær. Þar eru mínar rætur, þar á fjölskylda mín jörð og ættaróðal. Ég hef eytt þar nær öllum sumrum frá því ég man eftir mér og síðar einnig meira og meira af vetrum. Þar er ég skógarbóndi og hef starfað við ferðaþjónustu, meðal annars sem leiðsögumaður um hálendi sveitarfélagsins. Þingeyjarsveitin, náttúran og samfélagið hafa mótað mig meira en ég geri mér líklega grein fyrir og hjarta mitt hefur lengi slegið fyrir sveitina mína.“

Reynsla

Þórdís Lóa minnir á að hún hafi starfað við stjórnun og rekstur sveitarfélaga í mörg ár, bæði sem kjörinn fulltrúi og sem stjórnandi. Sú reynsla nýtist vel, en það sem skipti hana meira máli sé trúin á öflug samfélög, tækifæri til uppbyggingar og mikilvægi þess að hlúa vel að fólkinu sem þar búi.

Í Þingeyjarsveit séu mikil tækifæri til að efla atvinnulíf, styðja við fjölskyldur, byggja upp skóla- og velferðarstarf og skapa enn betri aðstæður til að búa og starfa:

„Ég kem inn í þetta verkefni af auðmýkt en líka miklum metnaði og áhuga. Og ég segi bara eins og er: Hver vill ekki verða Þingeyingur? Framundan eru spennandi tímar og ég hlakka til samtals við ykkur um framtíðina.“

Þingeyjarsveit

Auk L-listans Framfara fyrir Þingeyjarsveit eru tveir aðrir listar sem bjóða fram í sveitarfélaginu, N-listinn og Á-listi Ábyrgðar.

Í tilkynningu L-listans segir að Þórdís Lóa sé kynnt sem sveitarstjóraefni framboðsins með stolti:

Eða Lóu í Víðumeins og hún er betur þekkt hér í sveit. Við fögnum því að Lóa hafi samþykkt að gefa kost á sér í þetta mikilvæga verkefni.

Þórdís Lóa búi yfir víðtækri og dýrmætri reynslu af stjórnun og rekstri sveitarfélaga, bæði sem oddviti í borgarstjórn undanfarin 8 ár og stjórnandi um árabil. Hún hafi í störfum sínum sýnt skýra sýn, festu í ákvarðanatöku og afburða samskiptahæfileika og getu til að leiða flókin verkefni til farsællar niðurstöðu:

„Þórdís Lóa þekkir Þingeyjarsveit afar vel. Rætur hennar liggja í sveitarfélaginu, þar sem hún er frá Víðum í Reykjadal. Hana hlakkar nú til að flytja heim. Þekking hennar á svæðinu, fólkinu og þeim tækifærum sem þar felast er því bæði djúp og raunveruleg.“

L-listi Framfara leggi ríka áherslu á framfarir og festu í stjórnun sveitarfélagsins. Mikil og tíð sveitarstjóraskipti séu ekki til þess fallin að byggja upp sterkt og traust samfélag til lengri tíma. Með öflugum sveitarstjóra ætli L-listinn að stuðla að auknum stöðugleika og tryggja öfluga forystu inn í nýjan kafla í sameinuðu sveitarfélagi.

Skipt hefur verið tvisvar um sveitarstjóra á þessu kjörtímabili í Þingeyjarsveit. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir tók við starfinu í mars 2023 af Jóni Hróa Finnssyni. Ragnheiði var sagt upp störfum í september á síðasta ári og tók þá Gerður Sigtryggsdóttir, oddviti E-listans í sveitarstjórn, við starfinu.

Segir að lokum í tilkynningu L-listans:

„Við teljum Þórdísi Lóu vera rétta leiðtogann til að leiða það verkefni. Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að eiga samtal við íbúa um framtíðina og þau fjölmörgu tækifæri sem framundan eru.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn