fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Umboðsmaður barna sendir borginni bréf vegna kaffistofu Samhjálpar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 13:19

Fyrirhugaður flutningur Kaffistofu Samhjálpar í húsnæði á Grensásvegi hefur reynst vægast sagt umdeildur. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirhuguð staðsetning kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46 hefur vakið miklar áhyggjur sumra íbúa í hverfinu vegna nálægðar við skóla og íþrótta- og tómstundastarf barna.

Hafa umboðsmanni barna borist ábendingar foreldra um þetta. Af því tilefni hefur umboðsmaður barna sent bréf á skrifstofu borgarstjóra þar sem bent er á að leggja beri sérstakt mat á áhrif ákvarðana um skipulagsmál á börn. Í bréfinu segir:

„Samkvæmt lögum um umboðsmann barna, nr. 83/1994, er það hlutverk embættis umboðsmanns barna að vinna að því að fullt tillit sé tekið til réttinda, þarfa og hagsmuna barna, með því að setja fram ábendingar og tillögur um úrbætur sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins. Þá ber umboðsmanni jafnframt að stuðla að því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, Barnasáttmálinn, sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 19/2013, sé virtur ásamt öðrum alþjóðasamningum sem varða réttindi og velferð barna.

Umboðsmaður barna vill því árétta fyrir Reykjavíkurborg, að áður en ákvarðanir eru teknar á vettvangi borgarinnar, eins og t.d. um skipulagsmál, ber að leggja sérstakt mat á áhrif þeirra á börn, en slíkt mat ætti ávallt að fara fram á fyrstu stigum umræðu eða ákvarðanatöku. Matið er liður í því að kanna hvort ákvörðunin samræmist 3. gr. Barnasáttmálans, sem kveður á um að það sem börnum er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang, þegar gerðar eru ráðstafanir sem varða börn. Leiði mat á áhrifum í ljós að um neikvæð áhrif á börn er að ræða, ber stjórnvöldum skylda til þess að leita allra leiða til þess að fyrirbyggja slík áhrif, og grípa til mótvægisaðgerða í þeim tilvikum þar sem það er ekki unnt. Þannig er tryggt að ákvörðun hverju sinni samræmist 3. gr. Barnasáttmálans.“

Tekur ekki afstöðu til staðsetningarinnar

Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, tekur fram í bréfinu að embættið taki ekki afstöðu til þess hvort fyrirhuguð staðsetning kaffistofunnar sé heppileg, en tilgangurinn sé „að vekja athygli borgaryfirvalda á þeirri skyldu, sem á þeim hvílir, samkvæmt ákvæðum Barnasáttmálans, um að leggja ávallt mat á áhrif ákvarðana á börn, til að tryggja réttindi og hagsmuni barna í þeirra nærumhverfi.“

Bréfið í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Ísland ætlar að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael

Ísland ætlar að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kleini lýsir yfir sakleysi

Kleini lýsir yfir sakleysi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu
Fréttir
Í gær

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina
Fréttir
Í gær

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%