fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 20:00

Héraðsdómur Suðurlands. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotaþoli í hinu svokallaða Reykholtsmáli, sem mátti þola miklar misþyrmingar og stórrán af hálfu hóps fólks sem er að hluta til tengt fjölskylduböndum, á heimili sínu í Reykholti í Biskupstungum, krefst 10 milljóna króna í miskabætur og rúmlega 4 milljóna í skaðabætur.

Þetta kemur fram í ákæru Héraðssaksóknara í málinu.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands þann 16. mars næstkomandi en meint brot voru framin í apríl 2024.

Júdókappi, garðyrkjufræðingur  á sjötugsaldri og þrítugur maður sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru á meðal sex sakborninga í málinu. Fjórir af sakborningunum sex eru tengdir fjölskylduböndum.

Manninum var haldið nauðugum á heimili sínu, honum var hótað og ógnað með bæði hníf og haglabyssu, auk þess sem hann var beittur grófu ofbeldi. Var honum meðal annars hótað að siglt yrði með hann til Grænlands og honum hent útbyrðis ef hann gæfi ekki upp upplýsingar um bankareikninga og rafræn skilríki.

Gerendur munu svo hafa blekkt starfsmann Símans og fengið hann til að setja upp skilríki í síma mannsins. Keyptu þau flugmiða til Parísar og þaðan til Möltu í nafni mannsins og millifærðu 17,6 milljónir af reikningi hans. Síðan óku þau honum upp á flugstöð og neyddu hann til að fara í flugið, því annars yrði dóttur hans unnið mein. Maðurinn lenti svo á Möltu og kom þar í ljós að hann var með blæðingu í framheila, nef- og puttabrotinn, búinn að tapa fimmtán tönnum og með fjögur brotin rifbein.

Tveir af sakborningunum eru ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft í fórum sínum í íbúð í Kópavogi afsagaða þriggja skota haglabyssu, tvær loftbyssur, skothús af haglabyssu, byssuskefti, haglaskot, hníf í grænu og brúnu slíðri, útdraganlegan hníf með brúnu skafti, tvo kasthnífa, kastöxi, piparúða, tvær útdraganlegar járnkylfur og svart hnúajárn. Lagði lögreglan hald á þessi vopn við húsleit við rannsókn málsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“
Fréttir
Í gær

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Í gær

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin