

Bæjarstjórn Kópavogs, eða meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, hefur samþykkt að Kópavogsbær taki að sér að reka Vetrargarðinn í Smáralind. Samningur verður gerður til 10 ára, er óuppsegjanlegur og er áætlað að bærinn greiði um 1,5 milljarð á samningstímanum. Þetta kemur fram í grein Theodóru S. Þorsteinsdóttur, bæjarfulltrúa Viðreisnar, á Vísi. Theodóra segir að tekist hafi verið á um málið á fundi bæjarstjórnar í gær.
Rýmið sem Kópavogsbær ætlar að reka í Smáralindinni á að vera menningarkjarni sem meðal annars mun hýsa bókasafn. Markmiðið mun vera að efla læsi og auka áhuga barna og ungmenna á lestri, efla félagslega velferð, auka menningarþátttöku, bæta aðgengi að menningu og styðja við geðheilsu og forvarnir.
„Einnig á þetta að vera staður til að „bara vera“, eða „chillout“, eins og það var útskýrt. Rýmið á að geta tekið við „open mic“ pop-up viðburðum, smiðjum, tónleikum og óhefðbundnum uppákomum,“ skrifar Theodóra sem bendir á að hugmyndin að þessu hafi bæði komið inn og verið afgreidd af bæjarstjórn af miklum hraða.
„Á slíkum hraða að nú hlýtur Halldór Benjamín í Smáralind að skrifa aðra grein þar sem hann þakkar bæjarstjóranum í Kópavogi fyrir frábært samstarf, engar hindranir, skilvirkni og fagmennsku.“
Theodóra tekur fram að Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri fasteignafélagsins Heima, hafi lýst því yfir í fjölmiðlum að hann vilji hafa meirihluta í Kópavogi sem „skilur hlutverk þeirra er hlúa að atvinnuuppbyggingu“. Á glærusýningu á fundi bæjarstjórnar í gær hafi einmitt komið fram að Heimar og Kópavogsbær hafi þróað verkefnið saman og muni það styrkja Smáralind sem áfangastað verslunar og þjónustu þar sem matur og menning fléttast saman.
Sökum þess mikla hraða sem málið var afgreitt á þá er ekki gert ráð fyrir „þessu Smáralindarævintýri“ í fjárhagsáætlunum. Theodóra segir það ekki hafa verið vinsælt að ræða fjármálin í bæjarstjórn í gær.
„Við þóttum púkaleg að skemma stemninguna fyrir þessari flippuðu hugmynd, eins og þau orðuðu hana sjálf.“
Theodóra segir að meirihlutinn hafi montað sig af góðri fjárstöðu og að til standi að skila 180 milljónum í afgang á þessu ári. Hið rétta sé þó að svo þetta gangi upp þurfi að taka lán upp á þrjá milljarða. Bærinn sé rekinn á um fimm milljarða yfirdrætti með 10 prósenta vöxtum og lausafé af skornum skammti. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri hafi farið mikinn á opinberum vettvangi til að kynna hagræðingartillögur. Minnihlutinn hafi þó ekki séð neitt uppgjör sem sýni hvernig þettar tillögur tókust, en nú sé þó komið fram að Ásdís gleymdi að lækka laun kjörinna fulltrúa, sem hún hafði þó boðað, í tæpt ár. Eins hafi Ásdís lagt til að lækka akstursgreiðslur til þeirra sem sinna velferðarþjónustu í sveitarfélaginu en á sama tíma hafnað tillögu minnihlutans um að lækka sínar eigin akstursgreiðslur.
„Bæjarstjórinn þiggur fastan aksturstyrk upp á 1250 kílómetra á mánuði og hefur nú hafið framleiðslu á nýrri þáttaröð „Á rúntinum – Á trúnó með bæjó“.
Theodóra spyr hvort það sé skynsamleg forgangsröðun að opna bókasafn í Smáralind og hvort það sé í raun og veru hlutverk Kópavogsbæjar að reka Vetrargarðinn í Smáralind fyrir hönd Heima og borga fyrir það á annað hundrað milljónir á ári.
„Öllum athugasemdum fulltrúa utan meirihlutans var mætt með skætingi.
Ég er kannski ekki nógu flippuð fyrir pop-up og chillout á kostnað skattgreiðenda á sama tíma og við getum ekki sinnt velferðarþjónustunni og styrkt skólana til að hlúa að börnum með fjölþættan vanda.“
Theodóra hefur boðað frekari greinaskrif um málið enda er fyrirsögn greinarinnar: Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4.
Átökin má sjá á fundargerð bæjarstjórnar, en þar sakaði minnihlutinn meirihlutann um valdahroka og yfirgang. Meirihlutinn tók fyrir þær ásakanir og vísaði til þess að hugmyndin hefði þegar hlotið náð hjá Menningar- og mannlífsnefnd. Ákvörðunin sé í samræmi við málefnasamning meirihluta enda með henni verið að stuðla að því að menningarkjarni verði starfræktur í efri byggðum. Minnihlutinn benti á að með þessu sé verið að fresta áætlunum um bókasafn í Kórnum sem lengi hafi verið beðið eftir. Smáralindin sé ekki í efri byggðum heldur vestan Reykjanesbrautar. Rýmið í Smáralind sé 900 fermetrar en á móti verði aðeins 175 fermetrar lagðir undir bókasafn í Kórnum.
„Engin rök eru færð fyrir því að Kópavogsbæ liggi svo mikið á að undirrita leigusamninginn að bæjarfulltrúum gefist hvorki tími né gögn til að geta með góðri samvisku tekið upplýsta ákvörðun.“
Meirihlutinn féllst þó ekki á að fresta málinu og sagði mikilvægt að hraða uppbyggingu menningar- og bókasafnsþjónustu.
Rétt er að geta þess að sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí og samningurinn sem hér um ræðir er, að sögn Theodóru, óuppsegjanlegur. Þar með verður næsti meirihluti, hvort sem hann verður skipaður sömu flokkum eða ekki, bundinn af þessari ákvörðun. Þar sem samningurinn er til 10 ára verður þarnæsti meirihlutinn bundinn sem og þarþarnæsti að hluta.
Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Ásdís Kristjánsdóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson leiða saman hesta sína. Þau störfuðu áður saman hjá Samtökum atvinnulífsins þar sem Halldór Benjamín var framkvæmdastjóri til ársins 2023 og Ásdís aðstoðarframkvæmdastjóri þar til hún tók við embætti bæjarstjóra árið 2022.