fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Ferðafólk lenti á kafi í vatni á Snæfellsnesi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. mars 2026 17:03

Mynd frá vettvangi björgunaraðgerðanna í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í hádeginu í dag var björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi boðuð út vegna ferðafólks sem hafði lent út af veginum um Snæfellsnes, rétt austan Stykkishólms og bíllinn fór hálfur á kaf í vatn.

Fólkið sá sitt ráð vænst í því að klifra upp á þak bílsins og þar sat það þegar björgunarsveitin kom á vettvang og bjargaði því af þakinu yfir í bíl sveitarinnar.

Aðstæður voru þannig að mikið vatn hafði safnast við veginn svo rann inn á hann að stórum hluta. Þegar fólkið kom aðvífandi virðist sem bíll þeirra hafi flotið upp þegar þau keyrðu í vatnið á veginum og ökumaðurinn misst stjórn á bílnum í kjölfarið.

Ekki urðu slys á fólkinu en það blotnaði eitthvað við þetta og farangur þeirra, sem var bjargað úr bílnum, var orðinn ansi blautur.

Björgunarsveitin flutti fólkið svo inn á Stykkishólm þar sem lögregla tók við því. Bílaleigunnar beið að ná bílnum úr vatninu og færa ferðalöngunum annan bíl til að halda ferð sinni áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Í gær

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna